Fjölmennur knapafundur

  • 24. júní 2012
  • Fréttir
Fjölmennur knapafundur

Um 300 knapar landsmótsins voru saman komnir á knapafundi í reiðhöllinni nú undir kvöld. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur, Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari, Sigríður Björnsdóttir dýralæknir og Ágúst Hafsteinsson yfirdómari gæðingakeppni fóru var yfir helstu reglur mótsins.

  • Borið hefur á nokkrum innbrotum í hesthús í Víðidal undanfarna daga og eru allir beðnir um að hafa gætur á og láta vita um grunsamlegar mannaferðir í hesthúsunum.
  • Heilbrigðisskoðun hesta fer fram 2-24 tímum fyrir sýningu og var brýnt fyrir knöpum að mæta tímanlega með hrossin sín, bæði fyrir forkeppni, milliriðla og úrslit. Kynbótahross eiga að mæta fyrir fordóm. Þá var tilkynnt að Sigurður V. Matthíasson er fulltrúi knapa á mótinu.
  • Orðum var beint að foreldrum og aðstandendum barna. Mörgum þykir nóg um að sjá börn á of erfiðum hestum í keppni og hefur þurft að stoppa úrslit í barnakeppni í vor vegna óhappa. Aðstandendur voru því beðnir að sýna fyrirhyggju við upphitun gæðinganna til að forðast slys inn á vellinum.
  • Þeir keppendur sem mæta seint inn á völl í keppni verða látnir bíða í stað þess að aðrir keppendur þurfi að stoppa eins og venja hefur verið. Hliðarverðir og þulir munu þess í stað hjálpast að við að koma þeim keppanda sem kemur of seint inn á völlinn svo seinagangur bitni ekki á þeim sem mæta á réttum tíma.
  • Þá var eigendur afkvæmahrossa beðnir um að koma upplýsingum um hross, knapa og hvernig afkvæmahestarnir verða sýndir til Guðlaugar Antonssonar sem fyrst.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link