868 fullnaðardómar fallnir það sem af er ári

  • 3. ágúst 2021
  • Fréttir

Frigg frá Hólshúsum á Landssýningu kynbótahrossa. Knapi er Viðar Ingólfsson en Árni Björn Pálsson sýndi hana í dómi. Ljósmynd/Gísli Guðjónsson

Alls hafa 868 fullnaðardómar fallið hér á landi það sem af er kynbótaárinu en síðsumarssýninar fara fram á Hellu, Hólum og Hafnarfirði 16.-20. ágúst. Búast  má við því að nokkur hundruð dómar bætist við á þeim en skráningu lýkur föstudaginn 6.ágúst.

Árið 2020 féllu alls 1222 fullnaðardómar og árið 2019, 1031 fullnaðardómur, reikna má með því að við lok síðsumarssýninga verði mætingin í ár mjög svipuð því sem verið hefur. Meðaltal aðaleinkunnar þessara 868 fullnaðardóma er 8,00.

Með hæstan dóm í ár er Katla frá Hemlu II með 8,77 í aðaleinkunn. Pensill frá Hvolsvelli hefur hlotið hæst fyrir sköpulag í ár 8,98 og hæstan hæfileikadóm hlaut Frigg frá Hólshúsum 8,89. Þegar skoðað er hvaða hross hefur hlotið hæstan hæfileikadóm án skeiðs er það Happadís frá Strandarhöfði með 9,26.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link