Jolly á toppnum í fjórgangi – Vicky vann gæðingaskeið

Irena og Þokki frá Efstu-Grund eru í öðru sæti í fjórgangi á myndinni í keppni á HM2019
Fyrsti keppnisdagur þýska Meistaramótsins fór fram í dag þegar keppt var í forkeppni í fjórgangi og gæðingaskeiði.
Hægt er að kaupa sér aðgang að mótinu og horfa á það í beinu streymi hvar og hvænar sem er út árið með því að smella hér.
Í fjórgangnum er það Jolly Schrenk sem er efst á Glæsi von Gut Wertheim með einkunnina 7,83. Irena Reber er í öðru sæti á Þokka frá Efstu-Grund með 7,57 og í því þriðja er Vanessa Reisinger á Spuna vom Pfaffenbuck II með 7,37.
Keppni í gæðingaskeiði var spennandi og litlu munaði á efstu þremur knöpum Vicky Eggertsson vann keppnina á Salvör vom Lindenhof með 8,38 í einkunn í öðru sæti varð Ladina Sigurbjörnsson-Foppa á Styrlu fra Skarstad með 8,33 og í því þriðja varð íslenski landsliðsknapinn Beggi Eggertsson á Besta frá Upphafi með 8,29.
Á morgun fer fram forkeppni í fimmgangi auk fyrri tveggja spretta í 250 og 150 metra skeiði.
Efstu 5 í gæðingaskeiði
# | Knapi | Hestur | Einkunn |
1 | Vicky Eggertsson | Salvör vom Lindenhof | 8,38 |
2 | Ladina Sigurbjörnsson-Foppa | Styrla fra Skarstad | 8,33 |
3 | Beggi Eggertsson | Besti frá Upphafi | 8,29 |
4 | Steffi Plattner | Ísleifur vom Lipperthof | 7,46 |
5 | Horst Klinghart | Anægja vom Lixhof | 7,25 |
Efstu 10 í fjórgangi
# | Knapi | Hestur | Einkunn |
1 | Jolly Schrenk | Glæsir von Gut Wertheim | 7,83 |
2 | Irene Reber | Þokki frá Efstu-Grund | 7,57 |
3 | Vanessa Reisinger | Spuni vom Pfaffenbuck II | 7,37 |
4 | Lisa Drath | Ísöld frá Strandarhjáleigu | 7,30 |
5 | Lilja Thordarson | Hjúpur frá Herríðarhóli | 7,27 |
6 | Lena Maxheimer | Abel fra Nordal | 7,20 |
7 | Marleen Stühler | Helgi vom Berghof | 7,13 |
8 | Andrea Weiss-Balz | Baldi frá Feti | 7,10 |
8 | Johanna Beuk | Jódís vom Kronshof | 7,10 |
10 | Stefan Schenzel | Mökkur frá Flagbjarnarholti | 7,07 |