Fljótir hestar og flinkir í fimmgangi á Þýska Meistaramótinu

  • 5. ágúst 2021
  • Fréttir

Frauke og Óðinn á HM2019 Ljósmynd/Sofie Lahtinen Carlsson

Annar keppnisdagur Þýska meistaramótsins fór fram í dag þegar keppt var í forkeppni í fimmgangi og fyrri tveimur sprettum í 250 og 150 metra skeiði.

Keppni heldur áfram á morgun þegar C- og B-úrslit hefjast í nokkrum greinum auk Futurity flokkum í fimmgangi og fjórgangi en það er vinsæl keppnisgrein í Þýskalandi þar sem unghross keppa og fá einkunn sem líklegt er að þau hljóti í framtíðinni. Þá fer einnig fram forkeppni í tölti þar sem margir stórkostlegir hestar og knapar eru skráðir. Þetta allt má horfa á í beinni útsendingu með því að smella hér.

Eins og Eiðfaxi greindi frá fyrr í dag að þá átti Frauke Schenzel góða sýningu á Óðni vom Habichtswald og er hún efst að lokinni forkeppni með einkunnina 7,90. Það nægði Frauke ekki því hún bætti um betur og er með þrjá hesta inni í A-úrslitum og þarf því að velja hvern hún mætir með. Hún er í öðru sæti á Djásn frá Vesturkoti með 7,37 í einkunn og 5-7 sæti á Elju frá Sauðholti 2 með 7,10 í einkunn. Þriðja að lokinni forkeppni er Lisa Drath á Byr frá Strandarhjáleigu með 7,30 í einkunn. Athygli vekur að 7 af 10 efstu hrossum í fimmgangi eru fædd á Íslandi. Þá verður að minnast á að Koki Olason er í 10 sæti á Frama frá Hrafnsholti og er því að öllum líkindum byrjaður að banka á landsliðsdyrnar hjá Sigurbirni Bárðarsyni. Þá er landsliðsknapinn Beggi Eggertsson með þátttökurétt í A-úrslitum á Eldi frá Hrafnsholti með 7,10 í einkunn.

10 efstu í fimmgangi

#. Knapi Hestur Einkunn
1 Frauke Schenzel Óðinn vom Habichtswald 7,90
2 Frauke Schenzel Djásn frá Vesturkoti 7,37
3 Lisa Drath Byr frá Strandarhjáleigu 7,30
4 Vicky Eggertsson Gandur vom Sperlinghof 7,27
5 Silvia Ochsenreiter-Egli Heljar frá Stóra-Hofi 7,10
5 Beggi Eggertsson Eldur frá Hrafnsholti 7,10
5 Frauke Schenzel Elja frá Sauðholti 2 7,10
8 Catherina Müller Á frá Pétursbergi 7,03
8 Brynja Sophie Arnason Skuggi frá Hofi I 7,03
10 Koki Olason Frami vom Hrafnsholt 7,00

 

Þjóðverjar eiga greinilega líka úr að spila fljótum hrossum í kappreiðaskeiði og þar er spennan mikil eftir fyrri tvo sprettina og litlu munar á fljótustu hestum. Seinni tveir sprettirnir fara fram á laugardag.

Í 250 metra skeiði eru jöfn í fyrsta sæti Anna-Alice Kesenheimer á Vídalín frá Hamrahóli og Siggi Narfi Birgisson á Gusti frá Syðri-Hofdölum en þau fóru á tímanum 22,37 sekúndum. Í Þriðja sæti er svo Markus Albrecht-Schoch á Kóngio frá Lækjamóti á tímanum 22,40.

10 efstu í 250 metra skeiði

# Knapi Hestur Tími
1 Anna-Alice Kesenheimer Vídalín frá Hamrahóli 22,37″
1 Siggi Narfi Birgirsson Gustur frá Syðri-Hofdölum 22,37″
3 Markus Albrecht-Schoch Kóngur frá Lækjamóti 22,40″
4 Alexander Fedorov Hrólfur frá Hafnarfirði 22,50″
5 Nina Kesenheimer Krummi vom Pekenberg 22,51″
6 Vera Weber Náttrún vom Schloßberg 22,53″
7 Steffi Plattner Ísleifur vom Lipperthof 22,57″
8 Jens Füchtenschnieder Sproti vom Mönchhof 22,91″
9 Stephan Michel Gellir frá Sauðárkróki 23,05″
10 Claudia Rinne Hetja frá Bjarnastöðum 23,64″

 

Í 150 metra skeiði munar einungis einu sekúndubroti á Ladinu Sigurbjörnsson-Foppa sem er í fyrsta sæti á Styrla fra Skarstad á 14,47 sekúndum og Horst Klinghart á Anægju vom lixhof sem fór á tímaum 14,48 sekúndum. Í þriðja sæti er Siggi Narfi Birgisson á Snarpi frá Nýjabæ á 14,59 sekúndum.

 

10 efstu í 150 metra skeiði

#. Knapi Hestur Tími
1 Ladina Sigurbjörnsson-Foppa Styrla fra Skarstad 14,47″
2 Horst Klinghart Anægja vom Lixhof 14,48″
3 Siggi Narfi Birgirsson Snarpur frá Nýjabæ 14,59″
4 Ronja Klein Tónn vom Ilpetal 15,64″
5 Ladina Sigurbjörnsson-Foppa Hafliði frá Hólaborg 15,81″
6 Viola Langer Vaskur vom Schlossblick 16,00″
7 Martina Gifi Sóley von der Neitzerheide 16,18″
8 Sophie Veltmann Safír frá Efri-Þverá 16,49″
9 Svenja Wagner Gletta frá Ægissíðu 4 16,59″
10 Katharina Müller Nona vom Heesberg 16,78″

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link