Meistaramót Hollendinga – Niðurstöður

  • 10. ágúst 2021
  • Fréttir

Nils Christian og Flaumur Ljósmynd/Josefine Van Vessem

Líkt og Svíar og Þjóðverjar að þá héldu Hollendingar sitt meistaramót um helgina en það fór fram í Exloo þar í landi. Keppt var bæði í léttari greinum þar sem 2-3 riðu inn á í einu, ungmennaflokki og meistaraflokki.

Úrslit fóru fram á sunnudegi og verður hér greint frá þeim helstu.

Nils Christian Larsen átti gott mót en hann og Flaumur unnu þrefalt í tölti T1 með einkunnina 8,06 í fjórgangi V1 með 8,07 og einnig urðu þeir samanlagðir sigurvegarar í fjórgangsgreinum. Þá var hann efstur í forkeppni í fimmgangi og slaktaumatölti á Gusti vom Kronshof auk þess að vinnna gæðingaskeið og samanlagðan fimmgangssigur. Nils mætti þó ekki með hann til úrslita.

Í fimmgangi vann því Anne-Lene van Engelen á Fáki frá Mið-Fossum með 6,57 í einkunn.

Marjolein Strikkers og Spjót frá Fitjum voru fljótastar í 250 metra skeiði á 24,40 sekúndum og í 150 metra skeiði var það Rena Holthaus-Bosma á Seif frá Hrauni sem vann á tímanum 17,20.

 

Með því að smella hér má kynna sér öll úrslit frá mótinu.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link