Skeiðleikar fóru fram síðasta miðvikudagskvöld
Ingibergur og Sólveig frá Kirkjubæ á Íslandsmóti Ljósmynd/Gísli Guðjónsson
Fjórðu Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins þetta árið fóru fram síðastliðið miðvikudagskvöld. Síðustu Skeiðleikar ársins fara svo fram á Gaddstaðaflötum við Hellu samhliða Suðurlandsmóti sem er alþjóðlegt (WR).
Í 250 metra skeiði var það Sigursteinn Sumarliðason á Krókusi sem náði besta tímanum og það þrælgóðum, 22,21 sekúnda. Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur fóru á tímanum 22,63 sekúndur og urðu í öðru sæti og í því þriðja varð Ingibergur Árnason á Sólveigu á tímanum 23,01.
Hans Þór Hilmarsson og Vorsól voru fljótust 150 metrana á 14,43 sekúndum í öðru sæti varð Þórarinn Ragnarsson og Bína á 14,57 og í því þriðja Eyrún Ýr Pálsdóttir og Sigurrós.
100 metra fljúgandi skeið var síðasta keppnisgrein kvöldsins og þar var það Ingibergur Árnason sem fór með sigur á Sólveigu á 7,68 sekúndum. Konráð Valur og Kjarkur urðu í öðru sæti á 7,80 sekúndum og Teitur Árnason og Drottning fóru á 7,82 sekúndum.a
| Skeið 250m P1 | |||
| Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ | 22,21 |
| 2 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 22,63 |
| 3 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 23,01 |
| 4 | Hans Þór Hilmarsson | Jarl frá Þóroddsstöðum | 24,73 |
| 5 | Daníel Gunnarsson | Kló frá Einhamri 2 | 27,01 |
| 6-9 | Árni Sigfús Birgisson | Dimma frá Skíðbakka I | 0,00 |
| 6-9 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Rangá frá Torfunesi | 0,00 |
| 6-9 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Andri frá Lynghaga | 0,00 |
| 6-9 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 | 0,00 |
| Skeið 150m P3 | |||
| Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 14,43 |
| 2 | Þórarinn Ragnarsson | Bína frá Vatnsholti | 14,57 |
| 3 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Sigurrós frá Gauksmýri | 14,99 |
| 4 | Ívar Örn Guðjónsson | Funi frá Hofi | 15,12 |
| 5 | Ingibergur Árnason | Flótti frá Meiri-Tungu 1 | 15,27 |
| 6 | Guðlaug Jóna Matthíasdóttir | Auðna frá Hlíðarfæti | 15,30 |
| 7 | Erling Ó. Sigurðsson | Hnikar frá Ytra-Dalsgerði | 15,49 |
| 8 | Páll Bragi Hólmarsson | Vörður frá Hafnarfirði | 15,75 |
| 9 | Jón Bjarni Smárason | Blævar frá Rauðalæk | 15,79 |
| 10 | Kjartan Ólafsson | Hilmar frá Flekkudal | 15,84 |
| 11 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Óskastjarna frá Fitjum | 16,01 |
| 12 | Klara Sveinbjörnsdóttir | Glettir frá Þorkelshóli 2 | 16,08 |
| 13 | Fredrica Fagerlund | Snær frá Keldudal | 16,21 |
| 14 | Hans Þór Hilmarsson | Tign frá Hrafnagili | 16,39 |
| 15 | Konráð Valur Sveinsson | Laxnes frá Ekru | 16,78 |
| 16 | Herdís Rútsdóttir | Draumur frá Skíðbakka I | 17,94 |
| 17-22 | Hlynur Pálsson | Sefja frá Kambi | 0,00 |
| 17-22 | Sigurbjörn Bárðarson | Vökull frá Tunguhálsi II | 0,00 |
| 17-22 | Daníel Gunnarsson | Ösp frá Fellshlíð | 0,00 |
| 17-22 | Haukur Baldvinsson | Sæmundur frá Hekluflötum | 0,00 |
| 17-22 | Sara Dís Snorradóttir | Djarfur frá Litla-Hofi | 0,00 |
| 17-22 | Jakob Svavar Sigurðsson | Ernir frá Efri-Hrepp | 0,00 |
| Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 7,68 |
| 2 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 7,80 |
| 3 | Teitur Árnason | Drottning frá Hömrum II | 7,82 |
| 4 | Jakob Svavar Sigurðsson | Jarl frá Kílhrauni | 7,83 |
| 5 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Sjóður frá Þóreyjarnúpi | 7,89 |
| 6 | Viðar Ingólfsson | Ópall frá Miðási | 7,93 |
| 7 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Sigurrós frá Gauksmýri | 8,03 |
| 8 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir | Snædís frá Kolsholti 3 | 8,17 |
| 9 | Hans Þór Hilmarsson | Tign frá Hrafnagili | 8,19 |
| 10 | Kjartan Ólafsson | Stoð frá Vatnsleysu | 8,32 |
| 11 | Hans Þór Hilmarsson | Jarl frá Þóroddsstöðum | 8,45 |
| 12 | Árni Sigfús Birgisson | Dimma frá Skíðbakka I | 8,50 |
| 13 | Vilborg Smáradóttir | Klókur frá Dallandi | 8,53 |
| 14 | Jón Óskar Jóhannesson | Gnýr frá Brekku | 8,55 |
| 15 | Sara Dís Snorradóttir | Djarfur frá Litla-Hofi | 8,57 |
| 16 | Valdís Björk Guðmundsdóttir | Stólpi frá Svignaskarði | 8,66 |
| 17 | Haukur Baldvinsson | Sæmundur frá Hekluflötum | 8,70 |
| 18 | Stefanía Sigfúsdóttir | Drífandi frá Saurbæ | 8,78 |
| 19 | Hilmar Þór Sigurjónsson | Þytur frá Litla-Hofi | 8,92 |
| 20 | Sævar Leifsson | Glæsir frá Fornusöndum | 9,09 |
| 21 | Herdís Rútsdóttir | Draumur frá Skíðbakka I | 9,18 |
| 22 | Klara Sveinbjörnsdóttir | Stáltá frá Búrfelli | 10,87 |
| 23 | Ágúst Gestur Guðbjargarson | Irma frá Eyjarkoti | 14,65 |
| 24-27 | Daníel Gunnarsson | Valdís frá Ósabakka | 0,00 |
| 24-27 | Kristófer Darri Sigurðsson | Gnúpur frá Dallandi | 0,00 |
| 24-27 | Þórarinn Ragnarsson | Stráksi frá Stóra-Hofi | 0,00 |
| 24-27 | Katrín Ösp Bergsdóttir | Styrkur frá Hofsstaðaseli | 0,00 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH