Kynbótasýningum lokið í Danmörku þetta árið
Nökkvi fra Bendstrup Ljósmynd: DI - avl og kåringer
Síðasta kynbótasýning ársins í Danmörku fór fram um helgina í Herning. Dómarar á sýningunni voru þau Valberg Sigfússon, Elsa Albertsdóttir og Nina Bergholtz.
Alls komu 27 hross til dóms og þar af 21 í fulllnaðardóm, þrjú þeirra hlutu 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1.verðlaun.
Hæst dæmdur á sýningunni var fimm vetra gamall stóðhestur, Nökkvi fra Bendstrup, en hann hlaut fyrir sköpulag 8,26, fyrir hæfikeika 8,34 og í aðaleinkunn 8,31. Hann hlaut m.a. einkunnina 9,5 fyir tölt og 9,0 fyrir samræmi, samstarfsvilja, fegurð í reið og fet. Sýnandi var Søren Madsen en ræktandi og eigandi er Birgitta Krogsgaard Guðnason. Nökkvi er undan Tívari fra Moselundgard en hann var undan Aski fran Hakangsgarden og Drottningu frá Litlu-Sandvík. Móðir Nökkva er Nótt fra Bendstrup sem er undan Jarli frá Miðkrika.
Öll hross á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH