Kynbótasýningarárið í Þýskalandi

  • 2. október 2021
  • Fréttir

Blær frá Leirulæk og Þórður Þorgeirsson. Mynd: Krijn Buijtelaar

Yfirlit yfir kynbótasýningar ársins

Í Þýskalandi voru haldnar 5 kynbótasýningar. Sýnd voru 196 hross á árinu en 181 hlutu fullnaðardóm. Frauke Schenzel og Þórður Þorgeirsson sýndu flest hrossin, Frauke sýndi 21 hross í fullnaðardóm og Þórður 20.

Blær frá Leirulæk hlaut hæstu aðaleinkunn ársins í Þýskalandi, sýndur af Þórði Þorgeirssyni. Blær hlaut 8,48 fyrir sköpulag, 8,49 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,49. Hann hlaut m.a. 9,0 fyrir skeið, samstarfsvilja, hófa og prúðleika. Blær er 6 vetra undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Þórdísi frá Leirulæk sem er undan Ófeigi frá Þorlákshöfn og Daladís frá Leirulæk. Blær er ræktaður af Sigurbirni Jóhanni Garðarssyni og var fluttur út haustið 2020. Eigandi er Johannes Pantelmann og Volker Sill.

Njála vom Kronshof er hæst dæmda hryssa ársins, sýnd af Frauke Schenzel. Njála er 6 vetra og hlaut í aðaleinkunn 8,39, 8,31 fyrir sköpulag og 8,43 fyrir hæfileika. Hún er undan Hnokka frá Fellskoti og Glódís vom Kronshof sem er undan Depil frá Votmúla 1 og Næpu vom Kronshof. Ræktandi Njálu er Kronshof GbR en þau eru einnig eigendur ásamt Önju Egger-Meier.

Sjafnar frá Syðra-Kolugili hlaut hæstu hæfileika einkunn ársins eða 8,50. Sjafnar er 7 vetra og var sýndur af Þórði Þorgeirssyni. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,20 og í aðaleinkunn 8,40. Sjafnar er undan Sjóð frá Kirkjubæ og Óðsdótturinni, Spólu frá Stóru-Ásgeirsá.

Hæstu sköpulagseinkunn ársins hlaut Klakinn frá Skagaströnd en hann hlaut 8,72. Klakinn er 12 vetra og var að þessu sinni einungis sýndur í sköpulagsdóm.

 

10 hæst dæmdu stóðhestar ársins í Þýskalandi

Fæðingarnúmer Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi S H AE
IS2015136750 Blær Leirulæk Þórður Þorgeirsson 8.48 8.49 8.49
DE2014163010 Óskasteinn Habichtswald Elisa Graf 8.46 8.48 8.47
IS2014155174 Sjafnar Syðra-Kolugili Þórður Þorgeirsson 8.2 8.5 8.4
DE2016134224 Óríon Kronshof Frauke Schenzel 8.24 8.35 8.31
IS2013181812 Mugison Þjóðólfshaga 1 Styrmir Árnason 8.49 8.18 8.29
IS2015155118 Leikur Lækjamóti II Agnar Snorri Stefánsson 8.26 8.23 8.24
DE2008134788 Fursti Hrafnsholt Samantha Cannizzo-Leidesdorff 8.22 8.23 8.23
DK2011100117 Guðmundur Gultentorp Styrmir Árnason 7.93 8.39 8.23
DE2012143296 Galsi Maischeiderland Josefin Þorgeirsson 8.51 8.02 8.2
IS2015101166 Þormar Prestsbæ Þórður Þorgeirsson 8.44 8.00 8.16

 

10 hæst dæmdu hryssur ársins í Þýskalandi

Fæðingarnúmer Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi

S

H

AE

DE2015234888 Njála Kronshof Frauke Schenzel 8.31 8.43 8.39
DE2014234323 Mæra Kronshof Frauke Schenzel 8.32 8.4 8.37
IS2012287115 Djásn Vesturkoti Frauke Schenzel 8.34 8.35 8.35
DK2015200111 Hnokkadís Guldbæk Sigurður Óli Kristinsson 8.38 8.09 8.19
IS2015258843 Bjalla Miðsitju Þórður Þorgeirsson 8.09 8.22 8.17
DE2014243887 Flóra Töltmyllan Frauke Schenzel 8.25 8.06 8.13
DE2015234155 Nóta Kronshof Frauke Schenzel 8.06 8.17 8.13
DE2015210456 Sóley Meiersberg Lena Maxheimer 7.86 8.25 8.12
DE2012284461 Hamradís Pfaffenbuck II Thorsten Reisinger 7.89 8.22 8.1
DE2013234268 Smáralind Hegebusch Jolly Schrenk 8.11 8.09 8.1
DE2016234183 Ólína Kronshof Frauke Schenzel 8.06 8.12 8.1

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link