Hrosskjötsveisla Limsverja
„Hrossakjötsveisla Limsverja þann 9. janHrossakjötsveisla Limsverja verður haldin laugardaginn 9. jan. nk. svo við viljum biðja alla að spara við sig í áti yfir hátíðarnar því hrossakjötsveislan er ein magnaðasta átveisla landsins. Folalda-, trippa- og hrossakjöt matreitt á margvíslegan hátt en allt er þetta kjöt með mjög háa BLUP einkunn svo gæðin klikka ekki og kokkurinn með heiðursverðlaun fyrir eldamennsku og nokkra landsmótstitla í farteskinu. Nokkrir strigakjaftar munu koma og láta gamminn geysa yfir borðhaldi, verðlaunaveitingar og margt fleira skemmtilegt.
Endilega að taka daginn frá og mæta með bros á vör eins og þetta folald sem var ekki með nógu hátt BLUP til að vera étið.“
Limsfélagið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH