Mongol Derby byrjað
Aníta Aradóttir keppir í einni hættulegustu kappreið heims, Mongol Derby. Í keppninni er riðið 1000 km. og var fyrsti dagur Anítu í dag.
Aníta stóð sig mjög vel á fyrsta keppnisdegi í Mongol Derby og er í 15. sæti samkvæmt upplýsingum frá mótstjórn keppninnar. Samkvæmt GPS tæki Anítu er hún í fremsta hópnum í búðum númer 3. Það þýðir að hún hefur riðið 120 kílómetra fyrsta keppnisdaginn. Keppendur voru þreyttir þegar þeir komu á leiðarenda að loknum fyrsta keppnisdegi og fóru snemma í háttinn til að undirbúa sig fyrir átök morgundagsins.
Hægt er að heita á Anítu með fjárframlögum með því að leggja inn á reikning 515- 26- 253774 til að styrkja Barnaspítalasjóð Hringsins og 515- 26- 253778 til að styrkja Cool Earth, sem vinnur að verndun regnskóga Amazon. Sama kennitala er á báðum reikningunumen hún er : 200282-3619
Hér er hægt að fylgjast með gangi keppninnar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH