Liðakynning í áhugamannadeild
Síðustu fimm liðin sem við kynnum til leiks eru lið Kælingar og Team Kaldibar sem hafa verið í deildinni frá upphafi.
Og svo þrjú lið sem koma ný inn í deildina en það eru lið: Snaps Kapp, Einhamar Ísfell og Ölver brugghús
Nú er kynningum liða lokið og spennan fer vaxandi enda styttist í fyrsta mót. Undirbúningur er hafinn hjá öllum liðum og það er ljóst að knapar og þjálfara leggja mikinn metnað í undirbúninginn.
Það er einnig ljóst að klæðnaður og dressin eiga líka að vera í lagi og flestir leggja mikinn metnað í það enda verðlaun í boði fyrir best klædda liðið á uppskeruhátíð mótaraðarinnar. Það er sérstaklega gaman að segja frá því að að í liði Ölvers Brugghús er sérstakur búningastjóri en þar er kominn í hópinn Sigurður Sveinn Þórðarsson eða Siggi dúlla – sem er þekktastur fyrir að sjá um búninga Landsliðs karla í knattspyrnu. Hann er nú augljóslega kominn til að hasla sér völl í búningum í hestaíþróttum.
Dagskráin árið 2017 er eftirfarandi:
Fimmtudagur 16 febrúar : Fjórgangur
Fimmtudagur 2 mars : Fimmgangur
Fimmtudagur 16 mars : Slaktaumatölt og flugskeið gegnum höllina
Fimmtudagur 30 mars : Tölt – lokamótið
Gleðilega hátíð frá stjórn Áhugamannadeildar Spretts


Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH