Kynbótarsýningar árið í Sviss

  • 21. október 2021
  • Fréttir
Yfirlit yfir kynbótasýningar ársins

Í Sviss var haldin ein kynbótasýning og voru fullnaðardómar 8 talsins. Sýnendur voru Livio Fruci, Flurina Barandum og Martina Bächtold.

Væna von Wallenschwill hlaut hæsta dóm ársins í Sviss, en hún var sýnd af Livio Fruci sem jafnframt er eigandi hennar. Hún hlaut fyrir sköpulag 8,04, fyrir hæfileika 8,17 og í aðaleinkunn 8,12. Væna er undan Baltasar vom Freyelhof og Von fra Vigra sem er undan Nökkva frá Vestra-Geldingarholti og Hel frá Gullberastöðum. Ræktandi Vænu er Wyss Hedi.

Hrossin sem hlutu fullnaðardóm á árinu í Sviss

Fæðingarnúmer Nafn Uppruni Sýnandi SE HE AE
CH2014202752 Væna von Wallenschwil Fruci Livio 8.04 8.17 8.12
IS2013286652 Hugmynd Flagbjarnarholti Barandun Flurina 7.89 7.72 7.78
IS2011157340 Fleygur Hafsteinsstöðum Fruci Livio 8 7.42 7.62
IS2011257995 Framtíð Tunguhálsi II Fruci Livio 7.94 7.22 7.47
CH2014102796 Sindri vom Wydental Barandun Flurina 7.84 7.25 7.46
DE2007143128 Snillingur Gut Lindenhof Fruci Livio 7.61 7.34 7.44
IS2011257895 Farsæl Tunguhálsi II Bächtold Martina 7.68 6.82 7.12
IS2012201251 Gjöf Tölthólum Bächtold Martina 7.67 6.46 6.89

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link