Engin merki um skotsár á dauðu hrossunum í Landeyjunum
Eiðfaxi fjallaði í gær um að talið væri að gæsaskyttur hefðu skotið tvö hross í Landeyjunum en málið var kært til lögreglur.
Það er niðurstaða rannsóknar lögreglunnar á Suðurlandi að ekki hafi verið nein merki um skotsár eða skot á dauðu hrossunum en lögreglan fór á vettvang ásamt dýralækni eftir að tilkynning barst frá eiganda hrossanna. Hann taldi að hrossin hefðu verið skotin þegar hann fann þau dauð í haganum en blóð hafi runnið úr nösum beggja hrossa og þá hafi mátt sjá bljóð á brjóstkassa annars þeirra.
„Nákvæm skoðun leiddi í ljós að engin merki eru um skot eða skotsár á hræjunum og virðast hrossin hafa drepist af náttúrulegum ástæðum. Rannsókn málsins telst því lokið af hálfu lögreglu,“ segir í tilkynningu lögreglu en þar kemur einnig fram að hræin hafi verið skoðuð, hvort á sínum stað en rétt um kílómetri var á milli þeirra.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH