Talið að gæsaskyttur hafi skotið tvö hross

  • 25. október 2021
  • Fréttir
Hefur kært málið til lögreglu

Greint var frá í hádegisfréttum Bylgjunnar að tvö hross hafi drepist á Skeggjastöðum í Vestur Landeyjum í síðustu viku og talið er að gæsaskyttur hafi skotið hrossin en annað þeirra var þriggja vetra gamalt og hitt folald.

Baldur Eiðsson, sem býr í Lindartúni í Landeyjunum, var eigandi hrossanna sem voru í hagagöngu í landi Skeggjastaða sem hann hefur til umráða. Í samtali við RÚV segist Baldur vera búin að kæra málið til lögreglu „Á föstudag í síðustu viku þá er ég að athuga með hrossin, þá finn ég 2 dauð hross liggjandi í mýrinni. Þarna er ég við smölun svo ég gef mér ekki tíma til að skoða þetta mikið nánar en ég sé að það hefur blætt úr nösunum á þeim og þau hafa dottið niður dauð. Síðan í gær hitti ég nágranna minn og hann hafði þá stoppað þá menn helgina áður, þá sennilega menn í óleyfi. Ég tel að þessar gæsaskyttur með stóra riffilinn hafi orðið þeim að bana því þetta er ekki algengt að hross detti niður dauð og blæði úr brjósti og nösum. Ég er búinn að kæra þetta til lögreglunnar og hún hefur hafið rannsókn. Ég er búinn að fá dýralækni og hann staðfesti það líka, það eru engin ummerki um spark eða eitthvað slíkt. Hrossin duttu niður dauð.“

Frétt RÚV um málið er hægt að sjá hér

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link