Árni Björn Pálsson er knapi ársins

  • 30. október 2021
  • Fréttir

Ární Björn Pálsson á Ljúf frá Torfunesi

Verðlaunahátíð Landssambands hestamanna

Árni Björn Pálsson er knapi ársins 2021 en valið var kunngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er á Hotel Natura. Árni Björn átti gott ár bæði á keppnisbrautinni og kynbótavelli og sýnir ávallt prúða og fagmannlega reiðmennsku. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Árni Björn Pálsson átti frábæru gengi að fagna í ár í öllum greinum hestamennskunnar. Of langan tíma tæki að telja upp öll hans afrek en þeim helstu verða gerð skil. Íslandsmeistari í tölti á Ljúfi frá Torfunesi með einkunnina 9,44 og efstur á stöðulista í þeirri grein með einkunnina 9,20. Reykjavíkurmeistari í tölti á Hátíð frá Hemlu með 9,28 í einkunn. Hann er efstur á stöðulista ársins í fimmgangi á Kötlu frá Hemlu II með 7,73 í einkunn og reið henni til úrslita í þeirri grein á Íslandsmótinu. Hann sýndi fjöldan allan af frábærum kynbótahrossum eins og áður hefur verið upp talið. Hann er ofarlega á stöðulistum í öllum vegalengdum skeiðgreina á þeim Óliver frá Hólaborg og Ögra frá Horni. Hann sýndi Ljósvaka frá Valstrýtu í B-flokki gæðinga og reið honum í 8,80 í forkeppni sem er þriðja hæsta einkunna ársins. Þá náði hann frábærum árangri í gæðingaskeiði á Snilld frá Laugarnesi.  Árni Björn er á meðal fremstu íþróttamanna landsins og mætir alltaf einbeittur og vel undirbúinn til leiks hann er öðrum knöpum fyrirmynd í framkomu og hlýtur titilinn knapi ársins með sæmd.“

Einnig voru knapar ársins í eftirtöldum greinum valdir:

  • Efnilegasti knapi ársins – Guðmar Freyr Magnússon
  • Íþróttaknapi ársins – Jakob Svavar Sigurðsson
  • Gæðingaknapi ársins – Daníel Jónsson
  • Kynbótaknapi ársins – Árni Björn Pálsson
  • Skeiðknapi ársins – Konráð Valur Sveinsson

Keppnishestabú ársins var valið Þúfur, Mette Mannseth og Gísli Gíslason

Eiðfaxi óskar öllum þessum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangur ársins!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link