Keppnishestabú ársins
Keppnishestabú ársins er Þúfur í Skagafirði en valið var kynngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er á Hotel Natura. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Að Þúfum í Skagafirði rækta þau Gísli Gíslason og Mette Mannseth afrekshross í fremstu röð og hafa gert um árabil. Hross frá þeim voru í úrslitum í öllum hringvallargreinum á Íslandsmótinu með knöpum sínum en það voru þau Skálmöld, Kalsi, Sólon, Blundur og List. Þá stóð Kalsi efstur í A-flokki gæðinga á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi auk þess að þau List og Blundur voru í A-úrslitum í B-flokki. Frábær árangur hjá búi þar sem að þegar þessi hross voru að koma í heiminn fæddust á bilinu 8-10 folöld á ári. Fleiri hross en þau sem áður hafa verið upp talinn standa að baki þessum frábæra árangri og má þar nefna þau Kaktus og Værð. Gísli og Mette temja, þjálfa og sýna langflest af sínum hrossum sjálf og eru fagmenn fram í fingurgóma.
Eiðfaxi óskar þeim Gísla og Mette innilega til hamingju með árangur ársins!
Önnur bú tilnefnd:
- Íbishóll
- Litla-Brekka
- Garðshorn á Þelamörk/Lambanes
- Gangmyllan – Syðri-Gegnishólar/Ketilsstaðir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH