Lárus Hannesson hlaut gullmerki LH
Ólafur Þórisson, Lárus Ástmar Hannesson og Stefán Logi Haraldsson. Mynd: Facebook
Fyrrverandi formaður LH, Lárus Ástmar Hannesson, var sæmdur gullmerki LH í gær á formannafundi Landssambandsins vegna aðkomu hans að félagsmálum hestamanna. Lárus var m.a. formaður sambandsins í 6 ár.
„Það getur enginn náð árangri í félagsmálum nema hafa gott fólk með sér en það hafði ég þau ár sem ég var formaður. Frammi á gangi rakst ég á tvo sem eru í miklum metum hjá mér sem félagsmálamenn já og vinir og bað Mæju að smella einni af okkur köllunum. Til hægri er Stefán Logi Haraldsson Sauðárkróki sem var í stjórninni með mér árin 2018-2020 og er núverandi varaformaður. Á vinstri hönd er kappinn Óafur Þórisson sem var gjaldkeri öll þau sex ár sem ég var formaður. Félagsmál eru óskaplega skemmtileg. Takk fyrir mig kæru félagar í hestamennskunni.“ kemur fram í stöðufærslu hjá Lárusi en þar var honum heiður og þakklæti efst í huga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH