Leiðtoganámskeið FEIF 18 – 26 ára
Mynd: Helga Björg Helgadóttir
Námskeiðið í nóvember verður rafrænt á Zoom og í apríl verður viðburður haldinn í Vín í Austurríki.
Æskulýðsnefnd FEIF býður árlega upp á námskeið fyrir 18- 26 ára. Leiðtoganámskeið æskulýðsnefndar FEIF hafa verið haldinn í nokkur ár, þar á meðal á Íslandi, og hafa þótt takast einstaklega vel. Ungt fólk á þessum aldrei er hvatt til að skrá sig. Námskeiðið í nóvember er fyrsti hluti námskeiðsins og er undirbúningur fyrir 3ja daga námskeiðið í Vín og er mælt með að mæta á báða viðburðina. Efni námskeiðsins er stafræn tækni og hvers vegna er mikilvægt að nota stafræna tækni í hestaheiminum. Fyrirlesarar eru Sigrid Brandstetter og Daniel Brandel. Þau verða með námskeið um persónuvernd á netinu og leiðtogafærni á stafrænum miðlum. Viðburðurinn í apríl er bæði bóklegur og verklegur.
Umsóknarfrestur á rafræna viðburðinn er 15. nóvember 2021 og á viðburðinn í Vín er 25. Febrúar 2022.
Skráning er hjá Helgu Björg Helgadóttur [email protected] og veitir hún fleiri upplýsingar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH