Ný heimilidarmynd vekur hörð viðbrögð

  • 22. nóvember 2021
  • Fréttir
Blóðmerahald á Íslandi

Blóðtaka úr hryssum hefur verið viðhöfð hér á landi frá árinu 1979 í þeim tilgangi að vinna úr því virka lyfjaefnið eCG til framleiðslu á frjósemislyfjum. Lyfin eru síðan nýtt um heim allan til meðferðar á frjósemis vandamálum í húsdýrum og til samstillingar á gangmála. Lyfin eru notuð m.a. fyrir nautgripi, svín, kindur og geitur. Fyrst var lyfið flutt úr landi til vinnslu en síðan var ákveðið að vinna blóðið hérlendis og var Líftæknifyrirtækið Ísteka ehf. stofnað utan um reksturinn í desember árið 2000. Samkvæmt ársreikningi Ísteka fyrir árið 2020 var hagnaður ársins tæplega 600 milljónir.

Í ár voru 5.383 hryssur nýttar í þessa starfsemi á 119 starfsstöðvum (bæjum). Ísland er eitt af fáum löndum í heiminum í dag sem leyfa þetta.

Um helgina fór af stað dreifing myndbands sem sýnir harkalegar aðferðir við blóðtöku hryssa. Myndbandið er heimildarmynd þýsk/austurríska dýraverndunarsamtakanna TSB Tierschutzbund Zürich og notast var við faldar myndavélar við gerð myndbandsins.

Í gærkvöldi sendi Arnþór Guðlaugsson framkvæmdastjóri Ísteka frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir vinnubrögð og aðferðirnar sem sjást á myndbandinu óviðeigandi og ólíðandi. Einnig kemur fram í yfirlýsingunni að Ísteka hafi hafið innri rannsókn á birgjum og atvikunum með það að markmiði að tryggja að svona vinnubrögð leggist af. Hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild sinni á vef Ísteka

MAST, sem á að annast eftirlit með velferð dýra og störfum dýralækna, sendi frá sér fréttatilkynningu í morgun þar sem stofnunin tilkynnir að hafin sé rannsókn á málinu en starfsskilyrði starfseminnar er að tryggja velferð hryssnanna. Þar kemur einnig fram að málið er litið alvarlegum augum. Í tilkynningu segir þó líka “að blóðtaka úr fylfullum hryssum, sem framkvæmd er samkvæmt skilyrðum stofnunarinnar, sé í samræmi við lög nr 55/2013 um velferð dýra.“

Í byrjun árs skapaðist mikil umræða um blóðmerahald og barst sú umræða alla leið inn á þing. Lagt var fram frumvarp á Alþingi fyrr á þessu ári þar sem farið var fram á að bannað yrði blóðtaka úr fylfullum merum í þeim tilgangi að selja það eða vinna úr því vöru til sölu. Kjarninn birti viðbrögð nokkurra aðila; dýralækna, dýralæknafélagsins og öðrum sem koma að blóðmerahaldi. Þau virðast öll vera sammála því um að blóðtakan gangi ekki nærri hryssunum og að þetta sé ekki mikið inngrip.

Mikil reiði hefur myndast í kringum þetta mál hjá hópi hestamanna en Eiðfaxa hefur borist fjölda ábendinga frá fólki sem finnst þetta vera hrein dýraníð í hagnaðarskyni fárra einstaklinga, siðlaust og verulega skaðlegt fyrir ímynd íslenska hestsins.

Félag hrossabænda mun senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar