Katla frá Hemlu II efsta alhliða hross ársins
Ráðstefnan Hrossaræktin 2021 var haldin í dag og þar fóru fram verðlaunaveitingar.
Katla frá Hemlu II hlaut verðlaun fyrir hæstu aðaleinkunn ársins (aldursleiðrétt) sem alhliða horss. Katla hlaut í aðaleinkunn 8,77, fyrir hæfileika 8,88 og fyrir sköpulag 8,56. Katla er 9 vetra og er undan Ský frá Skálakoti og Spyrnu frá Síðu. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi Kötlu. Katla er í eigu Anja Egger-Meier en hún var ræktuð af Önnu Kristínu Geirsdóttur og Vigni Siggeirssyni.
Eiðfaxi óskar aðstandendum Kötlu innilega til hamingju.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing