Eyþór Jón Gíslason er nýr formaður Borgfirðings

  • 28. nóvember 2021
  • Fréttir

Aðalfundur hestamannafélagsins Borgfirðings var haldinn í Hjálmakletti miðvikudaginn 24. nóvember og sátu rúmlega 30 félagar fundinn.  Á fundinum voru eftirtaldir kjörnir nýir í stjórn félagsins.

Formaður var kjörinn Eyþór Jón Gíslason, aðrir nýir í stjórn eru Þórdís Arnardóttir, Rósa Björk Jónsdóttir og Sigurþór Ágústsson.

Kjörnir til tveggja ára á síðasta fundi eru Haukur Bjarnason, Baldur Pétursson, Þóra Árnadóttir og Brynja Gná Heiðarsdóttir.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link