Afkvæmi hvaða stóðhesta eru að fá hæst fyrir vilja?
Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.
Eiðfaxi birti í fyrra lista yfir stóðhesta, með ákveðinn fjölda afkvæma, og hverjir af þeim væru að skila hæstu einkunnum fyrir ákveðna eiginleika í sköpulagi og hæfileikadómi. Eiðfaxi ætlar að gera það sama í ár og byrja á því að skoða meðaltal einkunna afkvæma sem komu til fullnaðardóms á árinu fyrir samstarfsvilja
Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu.
Loki frá Selfossi er sá stóðhestur sem skilaði þeim afkvæmum sem hæsta einkunn hlutu fyrir samstarfsvilja. Meðaleinkunn þeirra er 8,61 en hann á alls 18 sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra er 6,8 ár.
Á eftir honum koma þeir jafnir Hringur frá Gunnarsstöðum og Sjóður frá Kirkjubæ en meðaleinkunn afkvæma þeirra fyrir samstarfsvilja er 8,58. Sjóður á 20 sýnd afkvæmi á árinu en meðalaldur þeirra er 6,3 ár og Hringur á 12 sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra er 4,8 ár.
Hér er listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir samstarfsvilja.
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Samstarfsvilji |
| Loki frá Selfossi | 18 | 6,8 | 8,61 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 12 | 4,8 | 8,58 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 20 | 6,3 | 8,58 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 16 | 5,9 | 8,53 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 16 | 6,6 | 8,53 |
| Skýr frá Skálakoti | 37 | 5,3 | 8,51 |
| Spuni frá Vesturkoti | 37 | 6,8 | 8,50 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu | 13 | 6,5 | 8,50 |
| Hreyfill frá Vorsabæ | 11 | 5,5 | 8,45 |
| Krákur frá Blesastöðum 1A | 10 | 8,4 | 8,45 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 29 | 5,8 | 8,45 |
| Konsert frá Hofi | 51 | 5,1 | 8,43 |
| Kiljan frá Steinnesi | 14 | 6,8 | 8,43 |
| Eldur frá Torfunesi | 11 | 6,3 | 8,41 |
| Ölnir frá Akranesi | 34 | 5,4 | 8,38 |
| Stáli frá Kjarri | 35 | 6,7 | 8,37 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 30 | 5,6 | 8,37 |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 10 | 5,6 | 8,35 |
| Viti frá Kagaðarhóli | 13 | 5,7 | 8,35 |
| Ómur frá Kvistum | 33 | 6,4 | 8,33 |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 14 | 5,9 | 8,32 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 10 | 4,9 | 8,30 |
| Hróður frá Refsstöðum | 10 | 6,2 | 8,30 |
| Draupnir frá Stuðlum | 11 | 4,3 | 8,23 |
| Álfur frá Selfossi | 27 | 7,2 | 8,20 |
| Arður frá Brautarholti | 10 | 6,6 | 8,20 |
| Álfasteinn frá Selfossi | 15 | 7,1 | 8,20 |
| Hnokki frá Fellskoti | 23 | 5,5 | 8,20 |
| Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum | 11 | 5,3 | 8,14 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH