Herkúles á þau afkvæmi sem hæsta einkunn hlutu fyrir sköpulag

  • 19. desember 2021
  • Fréttir

Af þeim stóðhestum sem áttu 10 eða fleiri afkvæmi sýnd í fullnaðardómi á árinu hlutu afkvæmi Herkúlesar frá Ragnheiðarstöðum að meðaltali hæst fyrir sköpulag.

Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu

Nú er röðin komin að þeim eiginleikum sem dæmdir eru í sköpulagi og rýnum við í meðaltöl afkvæma þeirra stóðhesta sem eiga 1o eða fleiri sýnd afkvæmi í ár.

Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu. Sá sem á flest afkvæmi með fullnaðardóm í ár er Konsert frá Hofi með 51 dæmt afkvæmi en þar á eftir eru þeir Skýr frá Skálakoti og Spuni frá Vesturkoti báðir með 37 sýnd afkvæmi. Með lægstan meðalaldur afkvæma er Draupnir frá Stuðlum en afkvæmi hans sem komu fram í ár voru einungis 4,3 vetra að meðaltali.

Herkúles frá Ragnheiðarstöðum, líkt og í fyrra, á þau afkvæmi sem hæstu einkunn hlutu fyrir sköpulag. Herkúles á 14 dæmd afkvæmi í fullnaðardómi í ár og er meðalaldur þeirra 5,9 ár. Afkvæmi hans sem til dóms komu eru samkvæmt þessu fallega sköpuð en þau hafa hæsta meðaltalið í þremur eiginleikum. Eiginleikarnir eru háls, herðar og bógar (me.8,50), samræmi (me.8,53) og prúðleiki (me.8,41). Þá er eins og áður segir meðaltal þeirra fyrir sköpulag hæst af þeim hestum sem eiga 10 fullnaðardæmd afkvæmi eða fleiri á árinu en þau hlutu 8,34 að meðaltali.

Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann háls, herðar og bógar

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Háls, herðar, bógar
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 8,50
Sjóður frá Kirkjubæ 20 6,3 8,48
Hringur frá Gunnarsstöðum 12 4,8 8,46

Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann samræmi

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Samræmi
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 8,53
Hringur frá Gunnarsstöðum 12 4,8 8,42
Konsert frá Hofi 51 5,1 8,41

Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann prúðleika

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Prúðleiki
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 8,41
Ölnir frá Akranesi 34 5,4 8,31
Skýr frá Skálakoti 37 5,3 8,19

 

Skaginn frá Skipaskaga á þau afkvæmi sem að meðaltalið hlutu hæstu einkunn fyrir höfuð eða einkunnina 8,23. Alls voru 10 afkvæmi Skagans sýnd í ár og meðalaldur þeirra var 4,9 ár.

Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann höfuð

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Höfuð
Skaginn frá Skipaskaga 10 4,9 8,23
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 8,22
Draupnir frá Stuðlum 11 4,3 8,16

 

Afkvæmi Hróðurs frá Refsstöðum hlutu að meðaltali hæstu einkunn fyrir bak og lend eða 8,59 í einkunn. Hróður átti 10 sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra er 6,2 ár. Afkvæmi Hróðurs voru einnig með hæstu meðaleinkunnina fyrir réttleika eða 8,09.

Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann bak og lend

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Bak og lend
Hróður frá Refsstöðum 10 6,2 8,59
Hringur frá Gunnarsstöðum 12 4,8 8,35
Hrannar frá Flugumýri II 30 5,6 8,32

Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann réttleika

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Réttleiki
Hróður frá Refsstöðum 10 6,2 8,09
Ölnir frá Akranesi 34 5,4 8,00
Viti frá Kagaðarhóli 13 5,7 7,96

 

Hreyfill frá Vorsabæ á þau afkvæmi sem hæstu einkunn hlutu fyrir fótagerð eða 8,45 var meðaltal einkunna þeirra. Hreyfill átti 11 sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra var 5,5 ár.

Þrír efstu hestar fyrir meðaleinkunn afkvæma fyrir eiginleikann fótagerð

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Fótagerð
Hreyfill frá Vorsabæ 11 5,5 8,45
Skýr frá Skálakoti 37 5,3 8,41
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 13 6,5 8,27

 

Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum, samkvæmt þessari töflu, skilar bestu hófunum en meðaltal einkunna afkvæma hans er 8,55 fyrir þann eiginleika. Álfarinn átti 10 sýnd afkvæmi á árinu en meðalaldur þeirra var 5,6 ár.

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Hófar
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 10 5,6 8,55
Arion frá Eystra-Fróðholti 29 5,8 8,40
Spuni frá Vesturkoti 37 6,8 8,35

 

 

Hér fyrir neðan má sjá meðaltals einkunnir afkvæma allra þeirra stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu í öllum eiginleikum dæmdum í sköpulagi.

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Höfuð Háls, herðar, bógar Bak og lend Samræmi Fótagerð Réttleiki Hófar Prúðleiki Sköpulag
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 8,22 8,50 8,25 8,53 8,25 7,78 8,22 8,41 8,34
Skýr frá Skálakoti 37 5,3 7,91 8,31 8,29 8,41 8,41 7,76 8,35 8,19 8,28
Skaginn frá Skipaskaga 10 4,9 8,23 8,42 8,08 8,35 8,04 7,73 8,31 7,77 8,21
Konsert frá Hofi 51 5,1 7,91 8,31 8,24 8,41 8,21 7,72 8,23 7,60 8,21
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 10 5,6 7,95 8,36 8,14 8,18 8,14 7,73 8,55 7,59 8,20
Sjóður frá Kirkjubæ 20 6,3 8,10 8,48 8,17 8,21 7,83 7,67 8,33 8,12 8,20
Ölnir frá Akranesi 34 5,4 7,88 8,27 8,21 8,31 7,94 8,00 8,28 8,31 8,19
Draupnir frá Stuðlum 11 4,3 8,16 8,41 7,94 8,28 8,19 7,88 8,34 7,56 8,19
Arion frá Eystra-Fróðholti 29 5,8 7,81 8,27 8,31 8,34 8,00 7,56 8,40 7,32 8,17
Eldur frá Torfunesi 11 6,3 7,73 8,30 8,00 8,23 8,27 7,87 8,27 8,00 8,16
Hróður frá Refsstöðum 10 6,2 8,14 8,27 8,59 8,18 8,09 8,09 7,73 7,64 8,16
Spuni frá Vesturkoti 37 6,8 7,91 8,27 8,18 8,16 8,05 7,86 8,35 7,69 8,15
Ómur frá Kvistum 33 6,4 7,91 8,21 8,09 8,26 8,22 7,66 8,26 7,74 8,14
Hringur frá Gunnarsstöðum 12 4,8 7,69 8,46 8,35 8,42 7,81 7,77 7,88 7,15 8,14
Hnokki frá Fellskoti 23 5,5 8,06 8,38 8,06 8,21 7,85 7,67 8,23 7,85 8,13
Hreyfill frá Vorsabæ 11 5,5 7,95 8,32 7,82 8,09 8,45 7,73 8,14 8,00 8,11
Kiljan frá Steinnesi 14 6,8 7,83 8,23 8,27 8,30 7,90 7,67 8,20 7,20 8,11
Trymbill frá Stóra-Ási 16 5,9 8,16 8,38 8,13 8,06 7,69 7,78 8,25 7,50 8,09
Hrannar frá Flugumýri II 30 5,6 7,64 8,16 8,32 8,30 7,92 7,65 8,22 7,08 8,09
Álfasteinn frá Selfossi 15 7,1 8,00 8,41 8,03 8,22 8,09 7,56 7,91 7,41 8,09
Loki frá Selfossi 18 6,8 7,71 8,21 7,93 8,24 7,88 7,69 8,33 7,67 8,07
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 11 5,3 7,83 8,17 8,00 8,21 7,88 7,75 8,25 7,29 8,05
Álfur frá Selfossi 27 7,2 8,00 8,23 7,76 8,15 7,98 7,52 8,29 7,81 8,05
Viti frá Kagaðarhóli 13 5,7 7,79 8,21 8,18 8,07 7,82 7,96 8,14 7,25 8,04
Óskasteinn frá Íbishóli 16 6,6 7,80 8,20 8,08 8,25 7,93 7,50 8,03 7,35 8,03
Stáli frá Kjarri 35 6,7 7,62 8,15 8,04 8,31 7,77 7,68 8,12 7,28 8,02
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 13 6,5 7,69 8,08 7,92 8,08 8,27 7,81 8,19 7,35 8,02
Arður frá Brautarholti 10 6,6 7,91 8,09 7,91 8,00 7,91 7,82 8,27 7,50 8,00
Krákur frá Blesastöðum 1A 10 8,4 7,65 8,05 7,85 7,90 7,75 7,85 8,05 7,90 7,91

Ef þú ert að skoða töfluna í síma er hægt að færa sig fram og til baka á töflunni til þess að sjá alla eiginleika.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link