Erlingur Erlingsson kynbótaknapi ársins í Svíþjóð

  • 8. desember 2021
  • Fréttir

Erlingur Erlingsson var valinn kynbótaknapi ársins í Svíþjóð en búgarður hans og Antoniu Hardwick, Segersgården, var einnig valið ræktunarbú ársins.

Ræktunarverðlaun ársins í Svíþjóð

Um helgina fór fram haustfundur SIF Avel eða ræktunarsamtaka SIF (Svenska Islandshastförbundet). Veitt voru ýmis verðlaun tengd ræktun, þ.á.m. ræktunarbú ársins, kynbótaknapi ársins, sporthestur ársins, heiðursverðlaun og fleira.

Erlingur Erlingsson var valinn kynbótaknapi ársins í Svíþjóð en búgarður hans og Antoniu Hardwick, Segersgården, var einnig valið ræktunarbú ársins.

Tilnefndir til kynbótaknapa ársins voru Daníel Ingi Smárason, Erlingur Erlingsson, Eyjólfur Þorsteinsson, Eyvindur Mandal-Hreggviðsson og Vignir Jónasson.

Hulda från Margaretehof var valin sænskfæddi sporthestur ársins. Daníel Ingi Smárason og Hulda settu heimsmet í 250 m. skeiði á árinu með tímann 21,07 sek. Fyrir utan það þá hlaut hún einnig gull á sænska meistaramótinu í 250 m. skeiði og átti einn besta tímann í 100 m. skeiði eða 7,35 sek.

Þar að auki voru verðlaunaðir með sérstökum heiðursverðlaunum þeir ræktendur sem hafa ræktað 15 eða fleiri hross sem hafa náð fyrstu verðlaunum eða 8,00 eða hærra í aðaleinkunn. Þeir ræktendur í Svíþjóð sem hafa náð þeim árangri eru:

  • Knutshyttan (Garðar Gíslason) með 27 hross með fyrstu einkunn. 106 hross skráð frá búinu, 40 dæmd. Meðaleinkunn 8,04
  • Örvik (Göran & Peter Häggberg) með 18 hross með fyrstu verðlaun. 86 hross skráð frá búinu, 39 dæmd, meðaleinkunn 7,95.
  • Skáneyland (Niels Lund & Sussie Lund Lindberg) með 17 hross með fyrstu verðlaun. 82 skráð hross frá búinu, 35 dæmd. Meðaleinkunn 7,98.
  • Gunvarbyn/Kolungens Gård (Þorleifur Sigfússon & fjölsk.) með 15 hross með fyrstu verðlaun. 68 hross skráð frá búinu, 22 dæmd. Meðaleinkunn 8,06

 

Efstu hross í hverjum flokki voru verðlaunuð en einnig var hæst dæmdi geldingurinn verðlaunaður. Sprettur från Sundsby er hæst dæmdi geldingurinn en hann er undan Oliver frá Kvistum og Mýkt frá Seljabrekku.

Hæst dæmda 4 vetra hryssan: 

Alma från SunsbergsKval S: 8,46 H: 7,78 Ae: 8,02
f: Viking fran Österaker
M. Álaborg frá Feti
Ræktandi: Per S. Thrane
Eigandi: Sundabakka Islandshästcenter, Christer Bergdahl och Lovisa Enblom)

Hæst dæmdi 4 vetra stóðhesturinn: 

Heidar från Segersgården S: 7,89 H: 7,45 Ae: 7,60
f. Herjólfur frá Ragnheidarstödum
m. Karma från Slätterne
Ræktendur: Antonia Hardwick & Erlingur Erlingsson
Eigandi: Lona Erica Sneve Aakerblad

Hæst dæmda 5 vetra hryssan: 

Diva från Ådalen – S: 8,53 – H: 7,82 – Ae: 8,07
F: Divar från Lindnäs
M: Rakel från Hyndevad
Ræktandi: Sigfús Sigfússon
Eigandi: Susan Larsson

Hæst dæmdi 5 vetra stóðhesturinn: 

Jöfur från Lindarbakka – S: 7,97 – H: 8,11 – Ae: 8,06
F: Atlas frá Hvoli
M: Jófridur frá Dallandi
Ræktandi: Susanne Myhre
Eigandi: UHP Educationn AB, Linda T

Hæst dæmda 6 vetra hryssan: 

Grima från Sundabakka – S: 8,34 – H: 8,28 – Ae: 8,30
F: Viking från Österåker
M: Gráskjóna från Lönneberga
Ræktandi: Vignir Jónasson
Eigandi: Sundabakka Islandshästcenter

Hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn: 

Ess från Sundabakka – S: 8,31 – H 8,94 – Ae: 8,07
F: Viktor fra Diisa
M: Elja frá Stykkishólmi
Ræktandi: Vignir Jónasson
Eigandi: Ida Nord

Hæst dæmda 7 vetra eða eldri hryssan: 

Valsa från Brösarpsgården – S: 8,04 – H: 8,35 – Ae. 8,24
F: Askur från Håkansgården
M: Vordis frá Ási I
Ræktendur: Magnús Skúlason og Anna Björnsson
Eigendur: Magnús Skúlason og Vigdis Fanney Magnúsdottir Skúlason

Hæst dæmdi 7 vetra eða eldri stóðhesturinn: 

Mósart från Smedjan – S: 8,09 – H: 8,63 – Ae. 8,44
F: Viktor fra Diisa
M: Minning från Margaretehof
Ræktendur: Pernilla og Jesper Eurenius
Eigendur: UPH Education AB, Linda T

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar