Nína frá Kirkjubæ var sú eina sem hlaut ELIT verðlaun

  • 10. desember 2021
  • Fréttir

Elva från Solbacka Mynd: Mette Lund Lindberg

Ferns konar afkvæma verðlaun fyrir hryssur í Svíþjóð

Um helgina fór fram haustfundur SIF Avel eða ræktunarsamtaka SIF (Svenska Islandshastförbundet). Veitt voru ýmis verðlaun tengd ræktun, þ.á.m. ræktunarbú ársins, kynbótaknapi ársins, sporthestur ársins, heiðursverðlaun og fleira.

Nokkrum hryssum voru veitt afkvæmaverðlaun en í Svíþjóð hljóta hryssur heiðursverðlaun ásamt því að geta hlotið þrenns konar önnur afkvæmaverðlaun sem er sér sænskt; Elite verðlaun, fyrstu verðlaun og önnur verðlaun

Til að fá heiðursverðlaun gilda sömu reglur og hér heima (5 dæmd afkævmi og 116 stig í kynbótamati). Engin hryssa hlaut heiðursverðlaun í Svíþjóð í ár.

Elite verðlaun fyrir afkvæmi (Elit för avkommor) – 5 dæmd afkvæmi og vera með 110 stig í kynbótamati.

Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi (Klass 1 för avkommor) – 3 sýnd afkvæmi, vera með 110 stig í kynbótamati og aldursleiðrétt aðaleinkunn afkvæma þarf að vera yfir 8,00 eða 8,30 án skeiðs.

Önnur verðlaun fyrir afkvæmi (Klass 2 för avkommor) – 3 sýnd afkvæmi, vera með 105 stig í kynbótamati og aldursleiðrétt aðaleinkunn afkvæma þarf að vera yfir 7,75 eða 8,00 án skeiðs.

 

Nína frá Kirkjubæ var sú eina sem hlaut ELIT verðlaunin. Nína er 28 vetra undan Flygli frá Votamúla 1 og Nönnu frá Kirkjubæ. Nína er með 112 stig í kynbótamati og á fimm sýnd afkvæmi; Fidla från Westerlund (f. Frami från Häringe) – 8.34, Mina från Westerlund (f. Jór frá Kjartanstödum) – 7.92, Fiona från Westerlund (f. Geimfari frá Lind) – 7.86, Diva Ninadóttir från Westerlund (f. Divar från Lindnäs) – 7.83, Hlin från Westerlund (f. Fannar frá Audsholtshjáleigu) – 7.81.

 

Eftirfarandi hryssur hlutu fyrstu verðlaun (Klass 1 för avkommor)

Nafn Aldur BLUP Fjöldi afkvæma Aldursleiðrétt me. afkv.
Prinsessa från Agersta 19 109 4 8,02
Smáralind frá Syðra-Skörðugili 20 114 3 8,29
Álaborg frá Feti 21 117 3 8,17
Þota frá Flagbjarnarholti 16 120 3 8,10
Rakel Rakel från Hyndevad 17 120 3 8,30
Björk frá Enni 122 3 8,13
Ásdis från Knutshyttan 15 123 3 8,09
Elva från Solbacka 15 125 3 8,18

 

Eftirfarandi hryssur hlutu önnur verðlaun (Klass 2 för avkommor)

Nafn Aldur BLUP Fjöldi afkvæma Aldursleiðrétt me. afkv.
Fanndís frá Auðsholtshjáleigu 17 109 3 7,90
Venus från Hocksbo 22 118 3 7,52
Sæta från Edeby 15 114 3 7,96
Freydis från Killebacken 15 109 3 8,18
Fjöður frá Enni 23 105 3 7,87
Blökk frá Hemlu 25 99 7,75 8,13

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link