Dagsetningar fyrir kynbótasýningar í Svíþjóð
Búið er að ákveða dagsetningar fyrir kynbótasýningar í Svíþjóð fyrir árið 2022.
Það er margt til að hlakka til árið 2022 en mörg stór mót eru á árinu Landsmót og Norðurlandamót í Finnlandi. Svíjar hafa einnig sænska meistaramótið því um að gera að skipuleggja fram í tímann. Fjórar dagsetningar hafa verið ákveðnar en mögulega verður tveimur öðrum bætt við seinna.
Kynbótasýningar í Svíþjóð 2022:
31. maí – 2. júní Axevalla
20. júní – 23. júní Romme
28. júlí – 30. júlí Axevalla
29. ágúst – 1. september Romme
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH