Kvöldopnun í Joserabúðinni Ögurhvarfi 2
Í tilefni af opnun nýrrar hestavörudeildar í Joserabúðinni verður boðið upp á sérstaka kvöldopnun fimmtudaginn 9. desember kl 17:00 – 21:00. Joserabúðin er í Ögurhvarfi 2. Fullt er af glæsilegum opnunartilboðum, Ásbjörn Ólafsson ehf. verður með kynningu á hestavörum, léttar veitingar verða í boði og allir sem versla fá óvæntan glaðning.
Þar sem að Covid takmarkanir eru enn í gangi viljum aðstandendur verslunarinnar minna fólk á að hafa grímu og tryggja nægilega fjarlægð milli fólks.



Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH