“Þetta eiga að vera þeir reiðmenn sem eru bestir undir pressu”

  • 21. desember 2021
  • Fréttir
Viðtal við Heklu Katharínu þjálfar U21 landsliðsins

Í byrjun desember var kynnt til leiks nýtt U21 Landslið Íslands í hestaíþróttum. Hekla Katharína Kristinsdóttir er þjálfari U21 landsliðsins og Eiðfaxi ákvað að slá á þráðinn til hennar að spyrja hana út í nýja landsliðið og komandi tímabil. “Þetta er frábær hópur en ég er búin að liggja töluvert yfir þessu, eðlilega. Ég byrjaði á að gera svokallaðan úrtakshóp en í honum voru 26 knapar og valdi síðan þessa 16 úr þeim hópi. Þegar þú velur í hópinn þá þarftu að velja frekar dreifðan hóp af knöpum, hugsa um hverja grein þannig að styrkleikar séu í öllum greinum. Knaparnir eru síðan skoðaðir sem reiðmenn, árangur þeirra og svo er líka hestakostur næsta árs mikilvægur” segir Hekla Katharína en henni líst vel á hópinn en enn er pláss í hópnum fyrir þá sem vilja sanna sig á undirbúningstímabilinu en landsliðsþjálfara er heimilt að velja knapa utan hópsins ef þurfa þykir. 

Stærsta verkefni landsliðsins á næsta ári er Norðurlandamótið á Álandseyjum í byrjun ágúst. “Nú vona ég að mín bölvun fari af mér en síðan ég tók við sem landsliðsþjálfari hefur ekkert stórmót verið haldið útaf heimsfaraldrinum. Það hlýtur að vera komið að því að ég geti farið út með hóp og setjum við fullan kraft í undirbúning fyrir Norðurlandamót en ég veit að landsliðsnefnd ætlar að fara með stóran hóp af ungum knöpum á þetta mót. Undirbúningstímabilið er nú þegar hafið en við byrjuðum á að vera með fyrirlestur fyrir knapana en það var hvatningarfyrirlestur frá Bergsveini Ólafssyni, sálfræðingi, en hann talaði við þau um markmiðasetningu og hvernig maður getur orðið betri í dag en í gær,” segir Hekla en í vetur verður síðan gert þrisvar sinnum stöðumat á knöpunum. Þar sem knaparnir senda henni myndbandsupptöku af þjálfunarstund hjá sér svo hægt sé að fylgjast með skrefum þjálfunarinnar. ”Allir knaparnir eru með sinn eigin þjálfara, ég er meira svona umsjónaraðili og fylgist með þeim. Auðvitað geta þau alltaf leitað til mín ef þeim vantar eitthvað,” segir hún. Knaparnir þurfa líka að sýna að þeir séu í góðu líkamlegu ásigkomulagi en í byrjun árs fara þau öll í mælingar og líkamlegt ástand þeirra verður metið. “Ég var búin að undirstinga frjálsíþróttaþjálfara sem er einnig hestamaður um að aðstoða mig við að vinna með knapana. Hann mun fara yfir líkamlegt ástand þeirra og segja þeim hvað það er sem þau þurfa að vinna í sem íþrótta- og reiðmenn,” segir Hekla.

Aðspurð hvort knapar þurfti að mæta á einhver ákveðin mót á tímabilinu segir hún ekki neina mætingarskyldu vera en þó sé það þannig að til þess að eiga möguleika á að vera valin í hóp þarf að sýna framúrskarandi árangur á stærstu mótum sumarsins. “Ég fylgist með hvað það er sem þau taka sér fyrir hendur. Ég vil að þau séu að skína á stóru mótunum í sumar. Þetta eiga að vera þeir reiðmenn sem eru bestir undir pressu og bestir að toppa á réttum tíma. Það er svona það sem ég er að líta til. Að sjálfsögðu eru síðan mörg frábær mót á undirbúningstímabilinu sem ég hvet þau til að taka þátt í til að undirbúa sig fyrir sumarið,” segir Hekla Katharína að lokum.

Efri röð f.v. Kristinn Skúlason form. landsliðsnefndar, Sigurður Baldur, Benedikt, Arnar Máni, Egill Már, Kristófer Darri, Hákon Dan, Matthías, Guðmar Hólm, Jón Ársæll, Hekla K. Kristinsdóttir U21-landsliðsþjálfari. Fremri röð f.v. Védís Huld, Glódís Rún, Hulda María, Katla Sif, Signý Sól, Þórgunnur, Gyða Sveinbjörg.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link