Daníel Ingi Smárason er knapi ársins í Svíþjóð
Ljósm: Sabina Svenningsson
Daníel Ingi Smárason var í gær valin knapi ársins í Svíþjóð. Hér fyrir neðan eru allir sigurvegarar ársins.

Daníel Ingi Smárason
Knapi ársins er Daníel Ingi Smárason sem átti magnað ár á hryssu sinni Huldu från Margretehof, sló heimsmet i 250 m skeiði á tímanum 21.07 á árinu 2021.
Gæðingur ársins

Háfeti frá Úlfsstöðum
Háfeti er gæðingur ársins en hann er magnaður ár eftir ár.
Íþróttaknapi ársins

Kristján Magnússon
Kristján vann tölt T1 og varð annar í fjórgangi V1 á sænska meistaramótinu. Hann var einnig samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina og er ofarlega á WR lista.
Sportknapi ársins í ungmennaflokki

Matilda Leikermoser Wallin
Mathilda stóð sig vel með tvo hesta á sænska meistaramótinu. Hún vann gull í tölti T1, silfur í fjórgangi V1, brons í fimmgangi F1 og var önnur bæði í samanlögðum fjórgangsgreinum og fimmgangsgreinum.
Sportknapi ársins í unglingaflokki

Lára Gardarsdottir
Lára Garðarsdóttir sigraði fjórgang V1 og náði öðru sæti í tölti T1. Auk þess hlaut hún Feather prize á sænska meistaramótinu
Gæðingaknapi ársins

Jamila Berg Dibi
Jamila hlaut 8,82 í B-flokki og varð önnur á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni með minnsta mögulega mun.
Gæðingaknapi ársins í ungmennaflokki

Ebba Johannesen
Ebba hefur sýnt mikla og góða frammistöðu allt tímabilið og endaði á því að vinna a flokk ungmenna á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni
Gæðingaknapi ársins í unglingaflokki

Lowa Walfridsson
Lowa var með tvo hesta í fimm efstu sætunum á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni. Hún vann svo úrslitin með frábæra einkunn.
Gæðingaknapi ársins í barnaflokki

Milla Bergqvist
Milla vann b úrslitin á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni í barnaflokki með 8,77 og vann síðan a úrslitin með 8,88. Hún á frábært tímabil að baki sem hefur farið jafnt og þétt upp á við.
www.icelandichorse.se
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH