“Draumur að rætast”

  • 30. janúar 2022
  • Fréttir
Viðtal við Silke sem hefur tekið yfir rekstrinum á Hrímnishöllinni á Varmalæk.

Silke Köhler hefur tekið yfir rekstrinum á Hrímnishöllinni á Varmalæk í Skagafirði en hún hefur mikinn áhuga á að kaupa staðinn. “Ég er að leigja aðstöðuna með möguleikann á að kaupa hann í framtíðinni ef hugmynd mín á bakvið reksturinn mun virka verður sá draumur vonandi að veruleika,” segir Silke sem rekur hestabúgarð í Þýskalandi, Bockholts hoff. “Ég er með íslenska hesta í Þýskalandi og hef alltaf verið mjög hrifin af landinu og elska að vera hér. Að eiga minn eigin stað á Íslandi er draumurinn. Ég kom hingað norður í fyrsta sinn 2019 og hugsaði með mér að þetta væri fallegasti staðurinn á jörðinni. Vinkona mín Gracina var að vinna hjá Magnúsi sem rekur Hestasport og þau buðu mér á hestbak fyrir norðan. Það var þá sem ég sá aðstöðuna hér á Varmalæk í fyrsta skipti og vissi að þetta væri staður sem ég myndi vilja eignast,” bætir Silke við.

Silke er fyrst og fremst í umboðssölu með hross en hún er mikið að kaupa hross sem hún tekur með sér út og selur síðan áfram. “Ég og vinkona mín, Jóhanna Heiða Friðriksdóttir, stofnuðum fyrirtækið TheHorseSeller og verður það með aðstoðu á Varmalæk. Við viljum hjálpa fólkinu hér í kring að selja hesta til Evrópu aðallega gegnum myndböndum. Að kaupa hest eftir að hafa séð hann bara á myndbandi er orðið mjög algengt en því fylgir alltaf einhver áhætta. Sú þjónusta sem við bjóðum upp á tekur þessa áhættu í burtu. Við höfum prófað hrossið, búum til mjög góð myndbönd, aðstoðum við útflutning, getum tekið við hrossinu aftur ef viðskiptavininum líkar ekki við það og bjóðum síðan upp á að hrossið getur komið fyrst til okkar og við aðstoðað viðskiptavininn fyrstu vikurnar á meðan hann er að kynnast hestinum,” segir Silke en vonast með aðstöðunni á Varmalæk að getað þjónustað viðskiptavini sína enn betur. Jóhanna mun sjá um daglegan rekstur á Varmalæk þar sem hún mun bjóða upp á reiðkennslu og taka hross í þjálfun og undirbúa þau fyrir Evrópumarkaðinn. Áfram verður þó einnig í boði að leigja stíur á Varmalæk og nota reiðahöllina. “Varmilækur er frábær staður fyrir þennan rekstur en hér er allt til alls. Við erum með völl, reiðhöll, hesthúspláss fyrir 20 hross, gott pláss til að leggja á, járningar aðstöðu, baðaðstöðu, eldhús og fleira,” bætir Silke við en með þessum rekstri sér hún fram á að getað stytt bilið á milli Íslands og Evrópu

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link