Sigursælasti hestamaður samtímans 70 ára í dag

Landsliðsþjálfarinn Sigurbjörn Bárðarson fagnar í dag 70 ára stórafmæli. Hann á að baki glæsilegan feril í hestamennskunni og er hvergi nærri hættur.
Sigurbjörn á einn lengsta keppnisferil í fremstu röð sem nokkur íþróttamaður hefur átt á Íslandi. Hann hefur keppt í öllum greinum hestaíþrótta í 56 ár, hann er margfaldur Íslands- og heimsmethafi í skeiðgreinum, hann hefur 13 sinnum unnið til gullverðlauna á Heimsmeistaramótum og unnið 120 Íslandsmeistaratitla. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og hefur fimm sinnum verið tilnefndur í hóp 10 efstu. Hann hefur gegnt starfi landsliðsþjálfara A-landsliðs LH frá árinu 2018.
Starfsfólk Eiðfaxa sendir Sigurbirni hamingjuóskir í tilefni stórafmælisins.

Sigurbjörn Bárðarson var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 en það er æðsta viðurkenning sem veitt er í íslenskum íþróttaheimi. Sigurbjörn er eini hestaíþróttamaðurinn sem hefur hlotið þennan heiður. Hesturinn á myndinni er Oddur frá Blönduósi farsæll keppnishestur Sigurbjarnar í tölti. Ljósmynd: Brynjar Gauti Sveinsson.