Folaldasýning og starfið framundan
Folaldasýning
Folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps verður haldin sunnudaginn 20. febrúar 2022 í Sleipnishöllinni að Brávöllum Selfossi og hefst hún kl. 13:30. Þátttökugjald er 2.500 kr. fyrir hvert folald og greiðist með reiðufé til gjaldkera. Skráningafrestur rennur út kl. 22:00 föstudaginn 18. febrúar. Koma verður fram nafn á folaldi, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi. Skráning er hjá Ágústi Inga [email protected] sími 899-5494, Atla Geir [email protected] sími 898-2256 og á netfang félagsins [email protected]. Áhorfendur velja með kosningu glæsilegasta folaldið. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, merfolöld og hestfolöld. Þeir sem verða með folöld eru beðnir um að mæta eigi síðar en kl. 13:00.
Í ljósi aðstæðna gætu orðið breytingar á sýningunni ef Covid verður til vandræða eða takmarkanir verða okkur óhagstæðar. Fólk er því beðið að fylgjast vel með fréttum þegar nær dregur sýningu.
Uppskeruhátíð/Aðalfundur/Skemmtiferð
Hrossaræktarfélagið áætlar að halda í mars og apríl, aðalfund og uppskeruhátíð félagsins, auk þess að blása til skemmtiferðar ef aðstæður leyfa. Verður nánar auglýst í næsta tölublaði.
Minnum á heimasíðu félagsins: http://hrossaraektarfelagfloa.wordpress.com/. Þar má fylgjast með fréttum af félaginu. Einnig má gerast áskrifandi að þeim fréttum sem settar eru þar inn. Hvetjum við alla félagsmenn til að setja þessa síðu í uppháhald hjá sér og ekki síður gerast áskrifendur að síðunni.
Þá er félagið einnig með virka facebooksíðu á slóðinni: https://www.facebook.com/Floahreppurhross. Þangað fara einnig allar fréttir af félagsstarfinu
Kveðja stjórn Hrossaræktarfélags Flóahrepps
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH