Dagur reiðmennskunnar og stórsýning Fáks

  • 3. mars 2022
  • Fréttir
Hestamannafélagið Fákur býður upp á veislu þann 26. mars næstkomandi.

Yfir daginn verða kennslusýningar með mörgum af okkar færustu tamningarmönnum og sýnendum. Verða þeir kynntir á komandi vikum.

Um kvöldið verður svo Stórsýning Fáks með tilheyrandi flugeldasýningu og lifandi tónlist á eftir í höllinni. Í anddyri reiðhallarinnar verður markaðstorg þar sem fyrirtæki kynna sínar vörur og þjónustu.

Takið daginn frá því þetta er viðburður sem enginn hestamaður má láta fram hjá sér fara!

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link