Nýtt kynbótamat komið

  • 14. mars 2022
  • Fréttir
Afhending Sleipnisbikarsins á Landssýningu kynbótahrossa sem fram fór á Rangárbökkum í sumar. Handhafar Sleipnisbikarins eru eigendur Skýs frá Skálakoti. þeir Guðmundur J. Viðarsson og Jakob Svavar Sigurðsson. F.v. Jakob Svavar Sigurðsson, Guðmundur J. Viðarsson, Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands og Sveinn Steinarsson formaður Félags Hrossabænda. Ljósmyndari: Louisa Hackl

Skýr frá Skálakoti hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2020

Leiðrétting fyrir landi tekin út

Búið er að reikna út nýtt kynbótamat í WorldFeng en í síðustu viku var gefið út að uppfæra ætti kynbótamatið og leiðrétting fyrir landi yrði tekin út. Hægt er að lesa nánar um þetta HÉR

Margir ræktendur gleðjast í dag og þá aðallega hérlendis en þetta hafði mikil áhrif á kynbótamat hesta hér á landi sem flestir hækkuðu.

Af þeim afkvæmahestum sem hafa gefið 15 afkvæmi eða fleiri stendur efstur Skýr frá Skálakoti með 134 stig, annar er Spuni frá Vesturkoti með 130 stig og þriðji er Kiljan frá Steinnesi með 127 stig. Hér fyrir neðan er hægt að sjá 10 efstu stóðhestana í kynbótamati sem eiga fleiri en 15 sýnd afkvæmi.

Gott er að hafa í huga þegar kynbótamatið er skoðað að þetta er spá um kynbótagildi hrossa og því þarft að hafa öryggið til hliðsjónar því eftir því sem öryggið er meira því hærra verður forspárgildi kynbótamatsins.

 

Fæðingarnúmer Nafn BLUP Öryggi Fj.skráðra afkv. Fj. afkv. m. fullnaðardóm
IS2007184162 Skýr frá Skálakoti 134 97% 505 77
IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti 130 98% 541 154
IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi 127 97% 378 81
IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ 126 96% 290 50
IS2005135936 Trymbill frá Stóra-Ási 125 95% 314 42
IS2010182570 Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 125 93% 220 24
IS2009101044 Skaginn frá Skipaskaga 125 92% 275 21
IS2007186992 Jarl frá Árbæjarhjáleigu II 124 95% 247 39
IS2007166206 Eldur frá Torfunesi 124 95% 226 44
IS2006158620 Hrannar frá Flugumýri II 123 97% 391 68
IS2010156107 Konsert frá Hofi 123 96% 343 66

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link