Ræktunarbú ársins

  • 7. október 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Lambanes var ræktunarbú ársins 2014.

Tilnefningar.

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar, Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 53 búa sem náð höfðu athygliverðum árangri á árinu. Ákveðið var að tilnefna 10 bú sem hljóta munu viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2015 sem haldin verður í Samskipahöllinni í Spretti laugardaginn 7. nóvember næstkomandi.

Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum um kvöldið.

Í stafrófsröð eru tilnefnd bú: 

Brautarholt, Björn Kristjánsson og Snorri Kristjánsson
Flagbjarnarholt, Bragi Guðmundson og Sveinbjörn Bragason
Hof I, Þorlákur Örn Bergsson
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
Miðás, Ásta Berghildur Ólafsdóttir og Gísli Sveinsson
Stóra-Vatnsskarð, Benedikt G. Benediktsson
Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson
Ytra-Vallholt, Björn Grétar Friðriksson og Harpa H. Hafsteinsdóttir
Þóroddsstaðir, Bjarni Þorkelsson og fjölskylda
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Fagráð í hrossarækt óskar tilnefndum búum innilega til hamingju með góðan árangur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link