Lið Slippfélagsins
Níunda liðið sem við kynnum fyrir ykkur af þeim fjórtán sem taka þátt í Suðurlandsdeildinni í vetur er lið Slippfélgsins:
UM SLIPPFÉLAGIÐ
Slippfélagið Málningarverksmiðja var stofnað árið 1902 og er eitt af elstu starfandi fyrirtækjum landsins. Slippfélagið framleiðir og selur inni- og útimálningu ásamt allri viðarvörn. Öll verkfæri og áhöld færðu einnig í Slippfélaginu. Verslanir Slippfélagsins eru alls 6 talsins, en sú nýjasta er glæsileg verslun á Selfossi sem opnaði síðasta sumar.
Slippfélagið státar af miklu og fjölbreyttu litaúrvali, en í verslunum okkar og á heimasíðu má t.d. finna hinn og þennan gæðinginn, svo sem Móa, Nátthrafn, Óskastein, Öskju, Skugga, Dag og Ljúf.
Tilviljun? Nei – við elskum hesta í Slippfélaginu og því nefnum við litina okkar m.a. fallegum gæðinganöfnum!
Liðsstjóri liðs Slippfélagsins er Hrefna María Ómarsdóttir, en hún keppir sem atvinnumaður í deildinni:
Nafn: Hrefna María Ómarsdóttir
Aldur: Þrjátíu og..
Starfstitill: Hestakona og Markaðsstjóri Slippfélagsins
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Vonandi verð ég nógu góð til að komast í liðið held það sé markmiðið í öllum greinum.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Reiðtúrarnir á Kolku minni heima í Víðidalnum. Ekkert jafnast á við gæsahúðar reiðtúrar á 5 vetra tryppi, ekki einu sinni tvöfaldur Landsmótssigur.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Eflir félagslegan anda og svo er æði að æfa og keppa í liði, fá hjálp og punkta frá liðsfélögum.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Ég vona að ég verði ein af þeim sem kemur hlaupandi úr brekkunni, hoppar yfir girðinguna og sæki bikar fyrir kynbótahross 😃 Svo erum við Álfhólafrænkur á heimaslóðum – ætli við þurfum ekki að dusta rykið af glimmer jökkunum og henda í góða ræktunarbússýningu!
Nafn: Vilfríður Þ. Sæþórsdóttir
Aldur: 38
Starfstitill: Þjálfari, reiðkennari og hrossaræktandi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Parafimi, fjórgang og tölt, restin verður að koma í ljós.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þau eru ótrúlega mörg. Ef ég á að nefna eitt þá er það þegar Roði fékk 1. verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti 2002. Það er eitthvað við ræktunina sem er svo skemmtilegt, maður verður alveg húkt á henni og þegar hún skilar árangri þá er það eins og að fá gleðisprautu beint í æð 🙂
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Fær mig til að mæta á æfingu og að sjálfsögðu heldur manni á tánum!
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi á vellinum. Annars í brekkunni í góðum félagsskap.
Nafn: Þórdís Erla Gunnarsdóttir
Aldur: 38 ára
Starfstitill: Reiðkennari / tamningakona og hrossaræktandi.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Vonandi sem flestum.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? A úrslit í A-flokki á honum Hrafnari mínum á Hellu 2014.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Hitti vinkonur mínar meira ❤
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Stefnan sett á hvorutveggja, keppa og fylgjast með öllum þessum gæðingum!
Áhugamenn liðsins eru eftirfarandi:
Nafn: Þórdís Anna Gylfadóttir
Aldur: Alltaf 25 ára!
Starfstitill: Verkefnastjóri og “multitaskari”
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Öllum – ef ég kemst í liðið!
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þegar ég fékk hest í 16 ára afmælisgjöf frá stóru systur, jarpsokkóttann, smá hrekkjóttan, úrvals töltara.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Kemur mér aftur í keppnisgír! Er búin að vera alltof lengi á hliðarlínunni.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi bæði!
Nafn: Saga Steinþórsdóttir
Aldur: 43 ára
Starfstitill: Mannauðsstjóri
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Bara sem flestum!
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Engin ein upplifun sem stendur upp úr, þær eru sem betur fer margar góðar. Það er gríðarlega gaman að taka þátt í keppnum og sýningum á Landsmótum en það er ekki síður gaman að njóta þeirra töfrastunda sem verða til þegar lagt er á gæðinginn í hestaferð og framundan er ekkert nema víðáttan og mjúkir árbakkar.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Allar þær deildir sem eru að störfum víðsvegar um landið eru að gefa hestafólki einstakt tækifæri til að taka þátt í hestaíþróttinni sem liðsíþrótt. Sem er frábær tilbreyting!
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi í brekkunni að njóta stemningar Landsmóts.
Nafn: Sigurður Halldórsson
Aldur: 40 ára
Starfstitill: Framkvæmdastjóri tæknideilda Skaginn 3X
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Parafimi, fimmgang, skeið og tölt
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Mörg eftirminnileg atvik, Íslandsmeistaratitlar og að eiga efsta hest í fjögurra vetra flokki á LM. En ég held að mesta upplifunin sé að sjá börnin sín vaxa og dafna í þessu sporti og geta upplifað það á nýjan hátt í gegnum þau.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Kemur með nýja áskorun og verkefni til að leysa. Þannig næ ég og hestarnir mínir að vaxa.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Í brekkunni og vonandi að aðstoða knapa í barnaflokki.
Næsta keppni í Suðurlandsdeildin er í Rangárhöllinni á þriðjudaginn en keppt verður í fimmgangi. Einnig er hægt að horfa í beinni á Alendis í vetur!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH