Meistaramót í gæðingafimi og parafimi
Meistaramót í gæðingafimi og parafimi 2022 verður haldið í Rangárhöllinni dagana 22.-23.apríl 2022. Keppt verður í gæðingafimi LH, öllum stigum og parafimi.
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka:
3.stig – Meistaraflokkur
2.stig – 1.flokkur 22 ára og eldri
2.stig – Ungmennaflokkur
2.stig – Unglingaflokkur
1.stig – 18 ára og eldri
1.stig – 10-17 ára
Parafimi – 1.flokkur 18 ára og eldri
Parafimi – 2.flokkur 18 ára og eldri
Parafimi – 10-17 ára
Þetta er fyrsta opna mótið í gæðingafimi og parafimi þar sem er öllum er frjálst að taka þátt. Nú er bara að byrja að æfa sig og skrá sig til leiks. Nánari upplýsingar um reglur gæðingafimi má finna HÉR og reglur um Parafimi má finna HÉR Varðandi Parafimina þá geta keppendur mætt í pörum alveg óháð getustigi knapa. Nánari upplýsingar 8637130.
Nánari upplýsingar um mótið munu svo koma þegar nálgast mótið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH