Ný dagsetning fyrir lokamót Meistaradeildarinnar
Seinasta mót Meistaradeildar Líflands fer fram föstudaginn 8.april á Ingólfshvoli en þá verður keppt í tölti og 100m skeiði. Keppni hefst kl 18:00 á tölti. Árni Björn leiðir einstaklingskeppnina með 50 stig. En á eftir honum kemur Teitur með 34 stig. En Teitur er ekki þekktur fyrir að gefast upp og mun leggja allt undir í töltinu og skeiðinu.Það er ljóst að það er gríðarlega sterk töltkeppni framundan og fljótustu hestar landsins munu mæta á lokamót deildarinnar. Frítt er inn í höllina fyrir áhorfendur í boði Meistaradeildar Líflands. Hlynur Snær Theodórsson trúbador ætlar spila vel valin lög fyrir gesti. Veitingar og drykkir í boði.Knapi sem vill keppa í tölti eða skeiði í Meistaradeildinni getur keypt sér keppnisrétt sem 25 knapi. Skráning fer fram á [email protected]. Þátttökugjald er 50.000kr, vilji fleiri en einn taka þátt mun hæstbjóðandi gilda. Skráningu lýkur miðvikudaginn 6. apríl kl. 12:00. Upplýsingar um leikreglur er hægt að nálgast á heimasíðu Meistaradeildar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH