“Sé fyrir mér að við fækkum gæðingunum ennþá meir”

Viðar Ingólfsson og sonur hans, Ragnar Snær, á Ræktun 2019
Eiðfaxi var á ferðinni í gegnum Ölfusið og ákvað að kíkja við í heimsókn til Viðars Ingólfssonar og taka púlsinn á honum fyrir næstu viku en þá er lokakvöld Meistaradeildarinnar. Hvernig fannst honum deildin ganga hjá sér í vetur? “Hún hefur gengið upp og niður. Ég er undir væntingum í einhverju og á pari í einhverju öðru. Það var svo sem vitað þar sem ég var að tefla fram nýjum hestum,” segir Viðar. Lokakvöld Meistaradeildarinnar er eftir viku, föstudaginn 8.apríl. Viðar stefnir á að mæta á Ópali frá Miðási í skeiðið í gegnum höllina en hvað hann kemur með í töltið er enn óráðið. Viðar keppti á Maístjörnu frá Árbæjarhjáleigu II í fyrra og enduðu þau í þriðja sæti en Maístjarna er nú komin í folaldseign, fylfull við Ský frá Skálakoti. “Lokakvöldið verður skemmtilegt. Árni Björn er kominn með níu putta á sigurinn, það þarf eitthvað mikið að ske ef hann vinnur ekki. Top Reiter tekur liðakeppnina, held það sé alveg öruggt,” bætir hann við.
Viðar hefur nú í nokkur ár haldið utan um sýninguna “Ræktun” sem haldin hefur verið á Ingólfshvoli og verður sýningin í ár á laugardaginn 30. Apríl. “Það er gaman að fá alvöru reiðhallarsýningar aftur. Alltaf gaman að koma saman og hvet ég alla til að mæta á þessa viðburði. Stóðhestaveislan er í byrjun í apríl og Ræktun í lok apríl. Undirbúningur gengur rólega ennþá en ég er að skoða hvað er í boði,” segir hann en þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni geta haft samband við Viðar.
Það eru margir spenntir fyrir Landsmóti og Viðar engin undantekning en hann vonast eftir að sjá mikið af fólki á mótinu. “Á ekki von á öðru en að þetta verði frábært mót. Ég er ekki búin að ákveða hvaða hross þetta eru sem ég stefni með það verður að ráðast aðeins þegar það líður á vorið. Ég verð með einhverja í íþrótta- og gæðingakeppninni. Vonandi líka eitthvað af kynbótahrossum,” segir Viðar sem líst vel á nýja fyrirkomulagið á mótinu varðandi íþróttakeppnina. “Það er vert að prufa þetta. Ég sé fyrir mér að við fækkum gæðingunum ennþá meir og hættum þessu félaga formi. Velja bara inn bestu 40-50 gæðingana en pössum okkur á að halda félagaforminu með börnin og unglingana,” segir Viðar að lokum.