Hver sigrar deildina?
Föstudaginn 8. apríl verður lokamót Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum haldið í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli þegar keppt verður í tölti og fljúgandi skeiði í gegnum höllina. Keppnin hefst kl 18:00 á tölti.Húsið opnar kl. 17:00. Frítt inn í boði Meistardeildar Líflands. Hlynur Snær Theódórsson trúbador ætlar að halda uppi stemningu fyrir og eftir keppni. Matur, drykkir ásamt úrvals liði hesta og knapa. Það gerist ekki betra. Ekki missa af gríðarlega sterkri töltkeppni og sjá fljótustu hesta landsins fljúga á skeiði í gegnum höllina.
Árni Björn Pálsson leiðir einstaklingskeppnina með 50 stig og næstur á eftir honum er Teitur Árnason með 34 stig. Það munar á þeim 16 stigum og nokkuð öruggt að hvorugur mun gefa nokkuð eftir á föstudaginn. Árni Björn sigraði töltið í fyrra á Ljúfi frá Torfunesi og spennandi að sjá hvort hann mætir með hann aftur eða tefli fram einhverju nýju hrossi. Árni Björn er einnig vel hestaður fyrir skeiðið en það sýndi hann svo sannarlega á skeiðdegi deildarinnar þegar hann sigraði báðar greinarnar. Teitur er einnig vel hestaður í töltinu en hann er með Takt frá Vakursstöðum og þeir hafa verið að gera það gott í deildinni í vetur. Hvað Teitur mætir með í skeiðið er erfitt að segja en í 150m. skeiðinu var hann á Sigurrós frá Gauksmýri sem er öskufljót hryssa og gæti fengið hana aftur lánaða hjá spúsu sinni. Eitt er víst að það ríkir mikil spenna fyrir lokakvöldinu og gaman verður að sjá ráslistana þegar þeir koma út.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH