Sýn Reynis varð að veruleika
Halldór Guðjónsson í Dallandi hefur kennt Reiðmanninn frá haustinu 2008 og var fyrsti reiðkennarinn til að kenna utan Miðfossa þar sem kennslan fór fram fyrsta árið.
Reiðmaðurinn er tveggja ára nám fyrir hinn almenna hestamann sem endurmenntunardeild Landbúnaðarháskólans heldur utan um. Mikill áhugi er á náminu sem nú er boðið upp á níunda árið í röð, en nemendahópurinn er afar fjölbreyttur og aldursbilið breitt.
„Rétt um 300 manns hafa klárað Reiðmanninn og í ár eru 24 að taka annað árið og þrír hópar, samtals 34 nemendur, að byrja á fyrsta ári,“ upplýsir Heimir en honum kemur þessi áhugi fólks ekki á óvart. „Þetta er alveg óunninn markaður, fram að því að Reiðmað urinn leit dagsins ljós var ekkert markvisst nám í boði fyrir almenna hestamenn en við höfum fundið fyrir því að almenningur vill bæta sig og læra meira.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands