“Er það ekki rugl að segja að hún eigi inni þar?”
Þórarinn Eymundsson er einn af norðan knöpum Meistaradeildarinnar og er hann mættur suður fyrir lokakvöld deildarinnar sem er á morgun, föstudag. Blaðamaður Eiðfaxa hitti hann á æfingu þar sem hann var að prófa skeiðhrossið sitt í fyrsta skipti. “Ég mæti með Röst frá Hólum í skeiðið en hún er í eigu Hólaskóla. Hún er undan Stála frá Kjarri og Gustsdóttur sem ég sýndi á Landsmótinu 2006 á Vindheimamelum. Hún hefur keppt einu sinni í skeiði í gegnum hús en það var á Sauðárkróki en henni hefur gengið ágætlega í 100m. skeiði,” segir Þórarinn sem mætir með gæðingshryssuna Þrá frá Prestsbæ í töltið. “Þetta er ung hryssa og framtíðar tölthross hjá mér. Hún er snillingur á tölti og er nú að stíga sín fyrsta skref í keppni sem er allt annar handleggur en kynbótasýning. Það er mjög gaman að henni og erum við að byrja einhverja vegferð hér saman,” bætir Þórarinn við en Þrá er hátt dæmd hryssa með 8,65 í aðaleinkunn, 8,71 fyrir hæfileika þ.á.m 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið.
“Það er ekki enn ákveðið hvaða stefna verður tekin fyrir Landsmót. Það verður bara að koma í ljós,” svarar Þórarinn inntur eftir því hvort hann stefni með hryssuna í töltkeppni á Landsmóti eða sýna hana í kynbótadómi. Aðspurður hvort hann telji að hryssan eigi ennþá eitthvað inni í kynbótadómi svara Þórarinn “er það eiginlega ekki rugl að segja að hún eigi inni þar?” og hlær.
Lokakvöld Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum er í kvöld, föstudag, í Ölfushöllinni en á laugardaginn verður Stóðhestaveislan haldin í sömu höll.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH