“Búinn að vera æfa mig síðan ég var 10 ára gamall”

  • 8. apríl 2022
  • Fréttir
Viðtal við Árna Björn Pálsson

Árni Björn Pálsson stendur efstur í einstaklingskeppninni fyrir lokakvöld Meistaradeildarinnar sem verður í kvöld í Ölfushöllinni. Þetta gæti orðið kvöldið þar sem Árni hreppir titilinn Meistarinn 2022 en þetta yrði þá í sjötta skiptið sem hann sigrar deildina (2014, 2015, 2016, 2018, 2021 og þá 2022), enn enginn hefur sigrað hana svo oft áður. Árni Björn mætir með Kastaníu frá Kvistum í töltið og Ögra frá Horni í skeiðið. “Gæti vel verið að ég væri að tefla í tvísýnu en ef ég ætlaði að spila þetta öruggt þá hefði ég komið með Ljúf frá Torfunesi en mig langar til að taka smá séns og ég held það verði líka skemmtilegra fyrir áhorfendur,” segir Árni Björn inntur eftir ástæðum fyrir valinu á tölthrossinu. Kastanía er óreynd á keppnisbrautinni en er hátt dæmd alhliða hryssa sem Árni telur vera mjög efnilega í greininni. “Það verður svaka stemning í kvöld. Ég hef ekkert skoðað ráslistann en ég pæli aldrei neitt í því hvað aðrir eru með. Ég hef enga stjórn á því,” bætir Árni við.

Árni Björn var valinn knapi og kynbótaknapi ársins 2021. Hann ætlar sér stóra hluti á árinu og bíður spenntur eftir Landsmóti. “Ég mun sýna nokkur hross í kynbótadómi en hversu mikið það verður kemur bara í ljós. Mitt markmið ar aldrei að sýna einhvern ákveðinn fjölda, ég á hins vegar erfitt með að segja nei,” segir Árni Björn. Hann stefnir á að mæta með Ljósavaka frá Valstrýtu í B flokkinn á Landsmóti og Ljúf frá Torfunesi í töltið. “Það er ekkert annað ákveðið. Íþróttakeppnin er enn óljós en það fer svolítið eftir þeim hryssum sem ég er með sem gætu farið í íþróttakeppni en þær eiga að fara í kynbótadóm fyrst og staðan verður síðan tekin eftir það. Þetta eru þær Katla frá Hemlu II, Lydía frá Eystri-Hól, Kastanía frá Kvistum og Álfamær frá Prestsbæ. Allt hryssur sem ég á eftir að stilla upp,” segir Árni Björn en hann sigraði fimmganginn í Meistaradeildinni á Kötlu frá Hemlu II og gæðingaskeiðið á Álfamær frá Prestsbæ. “Álfamær er undra hross. Þvílíkur gæðingur á öllum gangtegundum. Held ég hafi aldrei setið á svona hrossi og geðslagið alveg frábært. Hún tikkar í öll box. Tíminn þarf að leiða í ljóst hvert stefnan verður tekin með hana, hún fer í kynbótadóm í vor og síðan stilli ég henni upp í keppni í sumar,” segir Árni sem reiknar með að hún fari í kynbótadóm á Landsmóti ef allt tekst.

“Ég held að Landsmótið verði alveg sögulegt Landsmót í hesta kosti og breidd knapa. Maður sér það á öllum þessum deildarkeppnum hvaða hestamennskan í heildina er búin að stíga fram á við,” segir Árni sem vill sjá endurskoðun á skiptingu deildanna. “Þessir bestu áhugamenn eru meistaraflokks knapar í gæðum. Það er á hreinu. Ég er búinn að segja þetta nokkrum sinnum að þetta deildar kerfi þarf að skoðast upp á nýtt frá A til Ö. Til að allir fái glugga til þess að koma fram af því að maður sér hvað bestu áhugamennirnir eru orðnir svakalega góðir svo eru aðrir góðir áhugamenn sem þyrftu að hafa meira sinn vettvang, þá er ég að tala um annan flokk. Við þurfum að skilgreina okkur betur” bætir hann við en hann vill að einblínt sé á að búa til vettvang fyrir alla þar sem allir geta látið ljós sitt skína.

“Ég er búinn að vera æfa mig fyrir þetta Landsmót síðan ég var 10 ára gamall. Þetta verður svakalega veisla á öllum vígstöðum frá A – Ö. Það þarf bara að semja við gæjann þarna á efri hæðinni um veðrið. Ef við fáum frábært veður líka þá verður þetta besta Landsmót sem hefur verið haldið frá upphafi,” segir Árni Björn sem að lokum óskar öllum hestamönnum til hamingju með vorið og sumarið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link