Meistaradeild Líflands & æskunnar Árni Björn Meistarinn 2022

  • 8. apríl 2022
  • Fréttir
Top Reiter sigraði liðakeppnina í Meistardeild Líflands í hestaíþróttum

Árni Björn Pálsson er Meistarinn 2022. Þetta er sjötta árið sem hann sigrar einstaklingskeppnina í Meistaradeildinni en hann sigraði árið 2014, 2015, 2016, 2018, 2021 og 2022. Árni hlaut 64,5 stig, hálfu stigi meira en í fyrra. Þetta er þó ekki stigamet hjá Árna en hann hlaut 67 stig þegar hann sigraði deildina árið 2016. Árni vann þrjár greinar í vetur, fimmganginn á Kötlu frá Hemlu II, gæðingaskeiðið á Álfamær frá Prestsbæ og 150 m. skeiði á Ögra frá Horni.

Í öðru sæti endaði Teitur Árnason með 42 stig og í því þriðja varð Mette Mannseth með 24 stig.

Hér fyrir neðan eru efstu 10 knaparnir í einstaklingskeppninni 

  1. Árni Björn Pálsson – Top Reiter 64,5
  2. Teitur Árnason – Top Reiter 42
  3. Mette Moe Mannseth – Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 24
  4. Sigursteinn Sumarliðason – Skeiðvellir/Storm Rider 22,5
  5. Flosi Ólafsson – Hrímnir/Hest.is 21
  6. Glódís Rún Sigurðardóttir – Ganghestar/Margrétarhof 19,5
  7. Sara Sigurbjörnsdóttir – Auðsholtshjáleiga/Horse export 19
  8. Daníel Gunnarsson – Auðsholtshjáleiga/Horse export 18
  9. Konráð Valur Sveinsson – Top Reiter 18
  10. Hinrik Bragason – Hestvit/Árbakki 17

 

Top Reiter sigraði liðakeppnina annað árið í röð með 377,5 stig og í fjórða skiptið sem liðið sigrar deildina (2014, 2017, 2021, 2022) Frábær árangur hjá liðinu sem stóðu efst eftir fyrsta mótið og héldu forustunni í allan vetur. Þau hlutu liðaplattan í fjórgangum og í 100 m. skeiðinu. Knapar í liðinu eru þau Árni Björn Pálsson, Eyrún Ýr Pálsdóttir, Hanna Rún Ingibergsdóttir, Konráð Valur Sveinsson og Teitur Árnason.

Í öðru sæti varð lið Ganghesta/Margrétarhofs með 328 stig en knapar liðsins eru Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Ragnhildur Haraldsdóttir, Reynir Örn Pálmason og Sigurður V. Matthíasson. í þriðja sæti endaði lið Hjarðartúns með 311,5 stig en liðsmenn eru Reynir Örn Pálmason, Hans Þór Hilmarsson, Helga Una Björnsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson og Þórarinn Ragnarsson.

Liðakeppnin 2022

  1. Top Reiter 377,5
  2. Ganghestar/Margrétarhof 328
  3. Hjarðartún 311,5
  4. Auðsholtshjáleiga/ Horse export 304,5
  5. Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 287
  6. Hrímnir/Hest.is 271,5
  7. Hestvit/Árbakki 269
  8. Skeiðvellir/Storm Rider 251

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link