Takk fyrir okkur!

  • 11. apríl 2022
  • Fréttir
Stóðhestaveislan 2022

Stóðhestaveislan fór fram á laugardaginn í Ölfushöllinni og var uppselt á viðburðinn.

Fjöldinn allur af frábærum hrossum komu fram og þökkum við knöpum þeirra og eigendum fyrir velvildina en án þeirra hefði sýning aldrei orðið að raunveruleika.

Viljum við einnig þakka þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg í undirbúningi og á sýningarstað. Ekki má svo gleyma áhorfendum sem fylgdust með víðsvegar að úr heiminum í beinu streymi og á staðnum. Þá má með sanni segja að gleðin hafi verið við völd í Ölfushöllinni og greinilegt að hestamönnum var farið að lengja eftir því að skemmta sér saman.

Þeir sem misstu af því sem fram fór geta enn horft á viðburðinn á Alendis.is.

Þetta var frábært kvöld.

Takk fyrir okkur!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar