Sala á hrossum betri en í fyrra

  • 24. september 2014
  • Fréttir
Offramboð af söluhrossum er vandamál.

Mörgum er hugleikið að vita hvernig sala á hrossum gengur í dag. Eiðfaxi ræddi við nokkra söluaðila hrossa og spurðist fyrir um stöðu hrossasölu um þessar mundir.

„Það er reyndar þannig að framboð og eftirspurn fer ekki nógu vel saman. Offramboð er á ákveðnum tegundum af hrossum meðan skortur er á öðrum. Til dæmis hefur eftirspurn eftir kynbótahryssum minnkað mikið á sama tíma og margir vilja fækka þeim, þar á meðal eru margar fyrstu verðlauna hryssur sem ekki finnast kaupendur fyrir. Á sama tíma er mikill skortur á vel tömdum, hreingengum og meðfærilegum geldingum á viðráðanlegu verði,” segir Sigríður Elka Guðmundsdóttir sem rekur söluvefinn hest.is.

Greinina má nálgast í 9. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link