„Þarfasti þjóninn“

  • 22. apríl 2022
  • Fréttir
Lag Landsmóts 2022 á Hellu

Gefið hefur verið út lag fyrir Landsmót 2022 á Hellu. Lagið heitir Þarfasti Þjónninn en lag og texti eru eftir Dag Sigurðsson og flutt af Hilmi og Humlunum. Lagið verður frumflutt í kvöld, 22. apríl 2022 í VIKAN með Gísli Marteini.

 

 

‘Þarfasti Þjónninn’
Hilmir & Humlarnir

Lag og texti: Dagur Sigurðsson

Hann er ekki hár í loftinu
hann er óvenju sterkbyggður
alveg fjári þrautseigur
státar af jafnaðargeði.

Hann er óvenju fallegur
oft á tíðum viljugur
hann er hinn íslenski stóðhestur
í jörpu sem og í muskóttu.

Upp fjallagarð, inn eftir sveit

fákurinn ber mig á baki sér
berst ef við villumst af leið.
Og þegar bylurinn brestur á bak
þá er gatan loks greið.

Þá við ríðum af stað
viljum heim til þín.

Tignarlegur á töltinu
faxið flöktir í vindinum
þarfasti þjónninn í landinu
alveg frá landnámstímanum.

Gítargrip, capo 3.
vers: a, G, F, e
brú: F, G
viðlag: C, e, a, C, e , a
niðurlag: G, C

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link