“Við ætlum að sækja stig á öllum vígstöðum.“
Blaðamaður Eiðfaxa átti leið gegnum Hvolsvöll í dag og ákvað að koma við á hrossaræktarbúinu Hjarðartúni. Lokakvöld Suðurlandsdeildarinnar er í kvöld en búið er með lið í deildinni sem eins og stendur er í öðru sæti fyrir lokamótið. Lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns skipa þau Arnhildur Helgadóttir, Hans Þór Hilmarsson og Hekla Katharína Kristinsdóttir (atvinnumenn) og Gísli Guðjónsson, Hafþór Hreiðar Birgisson og Hermann Arason (áhugamenn).
Við settumst niður með Hansa sem að vonum var vel stemmdur fyrir kvöldinu en keppt verður í tölti og skeiði. “Við ætlum að sækja stig á öllum vígstöðum. Ég og Hafþór ætlum í skeiðið og standa okkur fáranlega vel. Ég keppi á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði og Hafþór er með hest sem Hjarðartún var að kaupa, Jarl frá Þóroddsstöðum.,” segir Hans en Jarl er undan Stála frá Kjarri og Gunni frá Þóroddsstöðum og því sammæðra Heru frá Þóroddsstöðum sem átti gífurlega farsælan kappreiðaferil með knapa sínum Bjarna Bjarnasyni. “Ég var að leggja hann aðeins seinasta sumar og mér líst mjög vel á þennan hest. Hann er búinn að gera góða tíma í 250m. og 100m. skeiði,” bætir Hansi við en hann og Hafþór ætla sækja sér stig í skeiðinu en það munar 13 stigum á þeim og liðinu í efsta sæti, liði Byko en Byko sigraði deildina í fyrra.
“Við ætlum að reyna vinna þetta núna. Ég og Hekla keppum í töltinu, Hekla er á Lilju frá Kvistum og ég er á Tóni frá Hjarðartúni. Hermann og Hafþór verða líka í töltinu, Hermann er á Gullhamri frá Dallandi og Hafþór á Krumma frá Höfðabakka,” segir Hansi að lokum um deildina. Hansi horfir björtum augum fram á sumarið eins og fleiri hestamenn enda margir búnir að bíða eftir Landsmóti. “Ég stefni með Penna frá Eystra-Fróðholti í A-flokk og Arnhildur stefnir með Draumhyggju frá Eystra-Fróðholti í annaðhvort A-flokk eða fimmgang í sumar. Stefnt er á að sýna Sindra frá Hjarðartúni í kynbótadóm nú í vor og svo verður staðan aðeins metin eftir það hvort hann fari í úrtöku eða ekki,“ bætir Hansi við en stefnt er á að sýna 8-10 hross frá búinu í vor.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum