Lið Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns sigrar Suðurlandsdeildina 2022

Eftir frábæran vetur í Suðurlandsdeildinni þá var það lið Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns sem sigrar Suðurlandsdeildina 2022 en úrslitin réðust ekki fyrr en að lokinni töltkeppni en allir fjórir knapar liðsins fóru í úrslit
Staðan í liðakeppninni
Sæti Lið Stig
1 Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún 410,5
2 Byko 383,5
3 Krappi 317,5
4 Smiðjan Brugghús 317
5 Nonnenmacher 315,5
6 Slippfélagið 275
7 Húsasmiðjan 265,5
8 Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær 245
9 Töltrider 242
10 Vesturkot 236
11 Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 218
12 Efsta-Sel 187,5
13 MúrX/Klúbbhús 187
14 Fet 180,5

Lið Byko hafnaði í öðru sæti í liðakeppninni. Mynd: Suðurlandsdeildin

Lið Krappa hafnaði í þriðja sæti í liðakeppninni Mynd: Suðurlandsdeildin
Kvöldið var magnað á Rangárbökkum en bæði tölt Hraunhamars fasteignasölu og skeið KEMI fór fram utandyra í frábæru veðri sem gefur svo sannarlega tóninn fyrir komandi Landsmót hestamanna.
Í skeiði KEMI var það Hafþór Hreiðar Birgisson í liði Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns á Jarli frá Þóroddsstöðum sem fór á tímanum 8.25 sek sem sigraði í flokki áhugamanna. Í flokki atvinnumanna var það Helga Una Björnsdóttir á Jarli frá Kílhrauni sem keppir fyrir lið Nonnenmacher sem sigraði á tímanum 7.95 sek. Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún vann liðabikarinn í skeiði. Hans Þór Hilmarsson sem einnig keppir fyrir lið Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns varð í 4-5 sæti á tímanum 8.45 sek á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði.
Áhugamenn
Sæti Knapi Hross Tími Lið
1 Hafþór Hreiðar Birgisson Jarl frá Þóroddsstöðum 8,25 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún
2 Vilborg Smáradóttir Klókur frá Dallandi 8,37 Smiðjan Brugghús
3 Árni Sigfús Birgisson Dimma frá Skíðbakka I 8,39 Byko
4 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti 8,52 Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð
5 Arnar Heimir Lárusson Funi frá Hofi 8,67 Vesturkot
6 Brynjar Nói Sighvatsson Nn frá Oddhóli 8,90 Töltrider

Hafþór Hreiðar Birgisson og Jarl frá Þóroddsstöðum fyrir lið Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns sigruðu Skeið KEMI á tímanum 8.25 sek í flokki áhugamanna. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Efstu sex hestar og knapar í 100m. skeiði áhugamanna. Hafþór Hreiðar Birgisson vann á Jarli frá Þóroddsstöðum. Mynd: Suðurlandsdeildin
Atvinnumenn
Sæti Knapi Hross Tími Lið
1 Helga Una Björnsdóttir Jarl frá Kílhrauni 7,95 Nonnenmacher
2 Sigurður Sigurðarson Hnokki frá Þóroddsstöðum 8,11 Krappi
3 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Óskastjarna frá Fitjum 8,15 Slippfélagið
4-5 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 8,45 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún
4-5 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum 8,45 Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær
6 Herdís Rútsdóttir Skæruliði frá Djúpadal 8,58 Byko

Helga Una Björnsdóttir á Jarli frá Kílhrauni fyrir lið Nonnenmacher sigruðu Skeið KEMI á tímanum 7.95 sek í flokki atvinnumanna. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Efstu sex knapar og hestar í 100m. skeiði áhugamanna. Helga Una Björnsdóttir vann á Jarli frá Kílhrauni. Mynd: Suðurlandsdeildin
Þá var komið að tölti Hraunhamars fasteignasölu en þar voru magnaðar sýningar og má segja að Leó Geir Arnarsson á Matthildi frá Reykjavík hafi átt sýningu kvöldsins en hann sigraði flokk atvinnumanna með hvorki meira né minna en 8.61 í aðaleinkunn en hann keppti fyrir lið Krappa. Í flokki áhugamanna var það Katrín Sigurðardóttir á hryssunni Ólínu frá Skeiðvöllum sem keppir fyrir lið Húsasmiðjunnar sem stóð uppi sem sigurvegar með einkunnina 7.10. Það var lið Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns sem sigraði liðakeppni í tölti en knapar þeirra í flokki atvinnumanna, Hekla Katharína Kristinsdóttir á Lilju frá Kvistum endaði þriðja og Hans Þór Hilmarsson á Tóni frá Hjarðartúni endaði fjórði. Í flokki áhugamanna var það Hermann Arason á Gullhamar frá Dallandi sem endaði þriðji og Hafþór Hreiðar Birgisson á Krumma frá Höfðabakka sem endaði fjórði. Glæsileg frammistaða hjá liðinu!
Atvinnumenn
Sæti Keppandi Einkunn Lið
1 Leó Geir Arnarson / Matthildur frá Reykjavík 8,61 Krappi
2 Helga Una Björnsdóttir / Fluga frá Hrafnagili 7,67 Nonnenmacher
3 Hekla Katharína Kristinsdóttir / Lilja frá Kvistum 7,61 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún
4 Hans Þór Hilmarsson / Tónn frá Hjarðartúni 7,44 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún
5 Lea Schell / Silfá frá Húsatóftum 2a 7,39 Krappi
6 Hákon Dan Ólafsson / Svarta Perla frá Álfhólum 7,28 Múr X / Klúbbhús
7 Sigursteinn Sumarliðason / Aldís frá Árheimum 4,78 Húsamiðjan

Leó Geir Arnarsson og Matthildur frá Reykjavík fyrir lið Krappa sigruðu Tölt Hraunhamars fasteignasölu með einkunnina 8.66 í flokki atvinnumanna. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Úrslit í tölti atvinnumanna. Leó Geir Arnarson sigraði á Matthildi frá Reykjavík. Mynd: Suðurlandsdeildin
Áhugamenn
Sæti Keppandi Einkunn Lið
1 Katrín Sigurðardóttir / Ólína frá Skeiðvöllum 7,11 Húsasmiðjan
2 Sævar Örn Sigurvinsson / Huld frá Arabæ 7,00 Byko
3 Hermann Arason / Gullhamar frá Dallandi 6,72 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún
4 Hafþór Hreiðar Birgisson / Krummi frá Höfðabakka 6,61 Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún
5 Sandra Steinþórsdóttir / Tíbrá frá Bár 6,56 Vesturkot
6 Saga Steinþórsdóttir / Mói frá Álfhólum 6,50 Slippfélagið

Katrín Sigurðardóttir og Ólína frá Skeiðvöllum fyrir lið Húsasmiðjunnar sigruðu Tölt hraunhamars fasteignasölu með einkunnina 7.10 í flokki áhugamanna. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Tölt úrslit áhugamanna. Katrín Sigurðardóttir vann á Ólínu frá Skeiðvöllum. Mynd: Suðurlandsdeildin
Heildarúrslit kvöldsins má nálgast í LH Kappa appinu.
Í haust verður auglýst eftir nýjum liðum í Suðurlandsdeildina og línurnar lagðar fyrir komandi tímabil.