Bilun í skráningarkerfi fyrir kynbótasýningar

  • 4. maí 2022
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Lokað fyrir skráningar á meðan unnið er að viðgerð

Mikill hiti er í fólki vegna skráninga á kynbótasýningar vorsins. Brösulega hefur gengið að komast inn á vefinn og kerfið hrunið oftar enn einu sinni. Skráning hófst í gær en loka þurfti fyrir skráningar í gær og opnað var aftur í dag kl. 10:00. Kerfinu hefur verið lokað aftur og verður ekki opnað fyrr en í fyrsta lagi á morgun, fimmtudag.

Í fréttatilkynningu af vef RML kemur fram; „Búið er að loka fyrir allar skráningar á kynbótasýningar vegna bilunar í pöntunarkerfi. Unnið er að viðgerð. Kerfinu hefur verið lokað og við getum í fyrsta lagi opnað það á morgun fimmtudag. Við biðjum fólk að sýna biðlund og RML biðst innilegrar afsökunar á þessum tæknilegu vandamálum. Fleiri tilkynningar munu berast á næstunni varðandi stöðuna.“

Ef litið er á sýningarnar í WorldFeng eins og skráning stendur núna er allt að fyllast á Gaddstaðaflötum Hellu, sýningin 7. til 10. júní er orðin fullskipuð og lítið eftir af plássum 13. til 16. júní.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar